Öll lína Kenzo fyrir H&M hefur loksins verið gerð opinber fyrir almenning. Línan fer á sölu 3.nóvember og verða líklegast langar raðir fyrir utan H&M búðir víðs vegar um heiminn. Það er nóg um að velja en mikið er um liti, munstur og víð snið.
Í gegnum tíðina hefur H&M farið í samstarf við fræg og virt tískuhús. Í fyrra var það Balmain og svo Alexander Wang á undan því. Þau hafa einnig unnið með Versace, Lanvin og Sonia Rykiel. Línurnar hafa undantekningarlaust slegið í gegn hjá aðdáendum verslunarkeðjunnar og hafa iðulega myndast langar raðir fyrir utan stærstu verslanir H&M um allan heim.
Því miður fá þeir sem eru staddir á Íslandi ekki tækifæri til þess að kaupa línuna. Hægt er þó að halda í vonina um að önnur samstörf fyrirtækisins í framtíðinni verði seld í versluninni sem opnar á hér á landi á næsta ári.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkur dress. Hægt er að sjá línuna í heild sinni hér.
Glamour