Körfuboltakvöld: Sjáðu frábærlega teiknað kerfi hjá Haukum | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2016 13:15
Haukar komust í gær áfram í undanúrslit Domino's deildar karla eftir sigur á Þór í Þorlákshöfn, 96-100, í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitunum. Þórsarar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með 14 stigum að honum loknum, 54-40. En Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn af gríðarlega krafti, skoruðu 14 fyrstu stig hans og jöfnuðu metin. Lokamínútur leiksins voru gríðarlega spennandi. Ragnar Nathanaelsson fór á vítalínuna í stöðunni 87-88 og 2,6 sekúndur eftir. Miðherjinn hávaxni klúðraði fyrra vítinu en setti það seinna niður. Staðan því jöfn, 88-88. Haukar tóku strax leikhlé og eftir miklar bollaleggingar hjá þjálfaranum Ívari Ásgrímssyni og aðstoðarmönnum hans teiknuðu þeir upp leikkerfi sem gekk nær fullkomlega upp. Emil Barja tók innkastið inni á vallarhelmingi Þórs, sendi háa sendingu á Hjálmar Stefánsson sem blakaði boltanum svo út fyrir þriggja stiga línuna á Kára Jónsson. Færið var fínt en boltinn skoppaði af hringnum og því þurfti að framlengja.Sjá einnig: Maður leiksins í Þorlákshöfn mætti í settið | Myndband Strákarnir í Körfuboltakvöldi voru afar hrifnir af þessu leikkerfi Haukamanna og fóru yfir það með Kára, manninum sem tók lokaskotið, í setti eftir leikinn.Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Körfuboltakvöld: Skagfirsk sveifla í Síkinu | Myndband Tindastóll tryggði sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með stæl þegar þeir unnu stórsigur, 98-68, á Keflavík í Síkinu á mánudagskvöldið. 30. mars 2016 11:45 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira
Körfuboltakvöld: Skagfirsk sveifla í Síkinu | Myndband Tindastóll tryggði sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með stæl þegar þeir unnu stórsigur, 98-68, á Keflavík í Síkinu á mánudagskvöldið. 30. mars 2016 11:45