Innlent

Hefja neyðarsöfnun fyrir konur á flótta í Írak

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Í tilkynningu frá UN Women á Íslandi kemur fram að yfir 600 þúsund konur og stúlkur hafi orðið fyrir barðinu á átökum í Mosul og á svæðunum í kringum borgina.
Í tilkynningu frá UN Women á Íslandi kemur fram að yfir 600 þúsund konur og stúlkur hafi orðið fyrir barðinu á átökum í Mosul og á svæðunum í kringum borgina.
UN Women á Íslandi hafa sett af stað neyðarsönfun fyrir konur á flótta í Írak vegna skelfilegs ástands í borginni Mosul. Samtökin hvetja alla til að senda sms-ið KONUR í númerið 1900 og styrkja söfnunina þannig um 1490 krónur en þannig er hægt að veita konu á flótta svokallað sæmdarsett sem inniheldur dömubindi, sápu og vasaljós.

Í tilkynningu frá UN Women á Íslandi kemur fram að yfir 600 þúsund konur og stúlkur hafi orðið fyrir barðinu á átökum í Mosul og á svæðunum í kringum borgina. Þær sárvantar neyðaraðstoð og þeim fer fjölgandi með hverjum deginum.

Í ljósi skelfilegs ástands í Mosul efnir UN Women á Íslandi til sms-neyðarsöfnunar fyrir konur á flótta í Írak. UN Women hvetur alla til að senda sms-ið KONUR í 1900 (1490 kr.) og veita konu á flótta sæmdarsett sem inniheldur dömubindi, sápu og vasaljós.

 

„Konur í Mosul eru í hræðilegri stöðu og eiga ekkert. Þær hafa verið innilokaðar heima hjá sér undanfarin tvö ár og hvorki mátt eiga né nota síma, snjallsíma, internet, horfa á sjónvarp né eiga í samskiptum við umheiminn á nokkurn hátt. Þær hafa verið sviptar lífsviðurværi sínu, reisn sinni og valdi yfir eigin lífi. Neyðin er gríðarleg og nú er mikilvægara en nokkru sinni að að hlúa að þessum hópi. UN Women vinnur að því að veita konum og stúlkum á svæðinu aftur rödd, lífsviðurværi, tilgang og aðstoða þær við að koma undir sig fótunum á ný. Nýlega settum við á fót griðastaði í búðum á Ninewa-svæðinu þar sem konur hljóta vernd og öryggi, áfallahjálp í kjölfar kynferðisofbeldis, sálrænan stuðning en fyrsta skrefið er að veita þeim sæmdarsett með helstu nauðsynjum sem gera konum kleift að halda í virðingu sína. Aftur á móti skortir fjármagn til að geta brugðist við neyðinni og haldið því áfram,“ er haft eftir Ingu Dóru Pétursdóttur framkvæmdastýru UN Women á Íslandi.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem samtökin gerðu vegna söfnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×