Veiði

32 laxar á land í fyrsta holli á Borg í Ytri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Tekið á laxi við Borg í Ytri Rangá
Tekið á laxi við Borg í Ytri Rangá
Veiðisvæðið kennt við Borg í Ytri Rangá er í miklum ham samfara hrikalegri veiði í Ytri enda fer allur laxinn fram hjá Borg á leið sinni upp ánna.

Það er leitun að lýsingarorðum sem ná utan um veiðitölurnar úr Rangánum þessa dagana en eins og við höfum greint frá þá veiddi opnunarhollið í Ytri Rangá 255 laxa sem er met sem við eigum erfitt með að trúa að verði nokkurn tímann slegið hér á landi.  Öll svæðin eru inni og pökkuð af laxi.  Neðra svæðið í Ytri Rangá er kennt við Borg og inní því eru veiðistaðir sem áður voru inní skiptingum á efra svæðinu, t.d. Straumey.

Veiði hófst í vikunni á Borg og opnunarhollið þar gerði feykna veiði eins og búist var við þegar ljósst var hversu mikill lax er kominn á svæðið og að krafturinn í göngunum er eins og á besta tíma.  Samtals var 32 löxum landað og stórlaxahlutfallið feykna gott.  Bestu staðirnir á svæðinu eru yfirleitt Straumey, Borg og með landinu þar sem moldarbakkinn byrjar við Borg en annars getur lax verið um allt þegar hann gengur meðfram landinu. 






×