Lífið

Angelina Jolie sækir um skilnað frá Brad Pitt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjónin á Óskarnum á sínum tíma.
Hjónin á Óskarnum á sínum tíma. vísir/getty
Leikkonan Angelina Jolie hefur sótt um skilnað en hún er gift leikaranum Brad Pitt og hafa þau verið saman síðan árið 2004.

Þetta kemur fram í slúðurmiðlinum TMZ en þar segir að ástæðan sé mismunandi sjónarmið parsins á barnauppeldi.

Jolie mun hafa sótt formlega um skilnaðinn í gær og fer hún fram á forræði yfir börnunum þeirra sex. Ef Jolie fær fullt forræði mun hún leyfa Pitt að heimsækja börnin en hún er ekki reiðubúin að vera með sameiginlegt forræði með leikaranum.

Hún segir í skilnaðarpappírunum að þau hafi skilið þann 15. september. Þau giftu sig í ágúst 2014 og er með sanni hægt að segja að þetta sé eitt allra frægasta par heims í dag. Brad Pitt er 52 ára en Angelina Jolie er 41 árs. 

Allir helstu miðlarnir um heim allan eru að greina frá málinu og staðfesti virtur blaðamaður CNN fréttirnar á Twitter fyrir stundu. Heimildarmaður CNN hefur staðfest fréttirnir.

Yfirvofandi skilnaður Brads og Angelinu hefur verið vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla síðustu ár. Í júní sló slúðurblaðið Star því upp að Selena Gomez hefði komið upp á milli þeirra. Nú fyrr í vikunni birti In Touch forsíðu með fréttinni. Nú virðist þetta vera orðið að staðreynd að Jolie hafi sótt um skilnað.

Samkvæmt skilnaðarskjölunum fer Angelina Jolie ekki fram á neina framfærslu. Þau felldu hugi saman þegar þau léku saman í kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith árið 2004. 

Þau giftu sig við leynilega athöfn árið 2014 á landareign sinni í Frakklandi, Chateau Miraval. Pitt bað Angelinu tveimur árum áður en þá höfðu þau verið saman í fjölda ára.

Pitt sagði að þau höfðu gengið í hjónaband vegna pressu frá börnunum þeirra. Jolie-Pitt börnin eru sex talsins og heita; Maddox Chivan (15 ára), Pax Thien (12 ára), Zahara Marley (11 ára), Shiloh Nouvel (10 ára) og tvíburarnir Knox Leon (8 ára) og Vivienne Marcheline (8 ára). 

Hér eru þau saman með börnunum sex við LAX flugvöllinn árið 2014.vísir/getty
Fyrir ári síðan mættu þau í þáttinn Today og ræddu ítarlega um hjónabandið. Þau hafa verið tíðir gestir í fjölmiðlum síðastliðin áratug. Brad Pitt var áður með Gwyneth Paltrow og Jennifer Aniston og Angelina Jolie var áður í sambandi við þá Jonny Lee Miller og Billy Bob Thornton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.