Enski boltinn

Vilja bara fá eiginhandaráritun Zola og þess vegna réðu þeir hann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianfranco Zola og Gary Rowett.
Gianfranco Zola og Gary Rowett. Vísir/Samsett frá Getty
Enska félagið Birmingham City ætlar að gefa Ítalanum Gianfranco Zola eitt tækifæri enn til sanna sig sem knattspyrnustjóri í enska boltanum en það eru ekki allir hrifnir af því.

Eigendur Birmingham City gerðu tveggja og hálfs árs samning við Gianfranco Zola en liðið er eins og er í áttunda sæti ensku b-deildarinnar og því í hörku baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildin á ný.

Breski blaðamaðurinn Pat Murphy sem starfar hjá BBC er allt annað en hrifinn af þróun mála hjá félaginu.

Murphy segir ráðninguna dæmi um stjörnudýrkun eigendanna og að þarna séu menn við stjórna sem elta frekar eiginhandaáritanir en að stýra fótboltafélagi af einhverju viti.  Það er hægt að hlusta á Murphy hér.

Birmingham City rak Gary Rowett á miðvikudaginn en hann var búinn að vera með liðið í tvö ár. Liðið er aðeins þremur stigum frá þriðja sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað fimm leikjum á tímabilinu.

Gianfranco Zola er fimmtugur og var á sínum tíma einn allra besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar þegar kappinn fór á kostum á sjö tímabilum með liði Chelsea.

Þetta er fyrsta starf hans síðan að hann hætti hjá Al-Arabi SC í Katar en þar áður hafði hann verið innan við eitt ár hjá Cagliari þar sem hann á sínum tíma spilaði tvö síðustu tímabilin á ferlinum.

Gianfranco Zola hefur tvisvar áður reynt fyrir sér hjá ensku félagi. Undir hans stjórn vann West Ham aðeins 23 af 80 leikjum frá 2008 til 2010 (29 prósent) en það gekk aðeins en ekki mikið betur með Watford sem vann 33 af 75 leikjum (44 prósent) undir hans stjórn frá júlí 2012 til desember 2013.

Zola fékk ekki nýjan samning hjá West Ham og hann sagði sjálfur upp hjá Watford. Hann var afrtur á móti rekinn frá bæði Cagliari og Al-Arabi SC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×