Innlent

Héraðssaksóknari óskar eftir vitnum að hörðum árekstri

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. vísir/friðrik þór
Héraðssaksóknari óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut rétt vestan við Reykdalsbrekku í Hafnarfirði 17. október síðastliðinn en tilkynning um árekstur barst lögreglu kl. 12:47. Þar rákust saman lögreglubifhjól í forgangsakstri og ljósgrár Hyundai.

Bæði ökutækin höfðu aksturstefnu í austur og var áreksturinn harður. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild.  

 

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við embætti héraðssaksóknara í síma 4440150 en einnig má senda tölvupóst á netfangið hersak@hersak.is.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×