Körfubolti

Yfirlýsing frá Grindavík: Stelpurnar gerðu ekkert rangt

Eins og fjallað hefur verið um lauk körfuboltaleik sem fór fram í 9. flokki kvenna um helgina með stórsigri, 101-2.



Vegna þess hefur unglingaráð körfuknattleiksdeildar Grindavíkur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Kröftug umræða hefur átt sér stað eftir facebook færslu þjálfara Njarðvíkur eftir leik Vals og Grindavíkur í 9. flokki kvenna.

Umræðan um of stóra sigra í yngri flokkum körfuboltans kemur reglulega upp og er ákveðið vandamál sem KKDG vill ekki sjá í hreyfingunni. Þjálfari 9. flokks kvenna í Grindavík hefur viðurkennt að reynsluleysi af hennar hálfu, í stöðu sem þessari, hafi gert það að verkum að leikurinn endaði með jafn miklum mun og raun bar vitni.

Hún greip til aðgerða í leiknum, en hefði getað gripið til róttækari ráðstafana sem hefðu minnkað skaðann þegar ljóst var í hvað stefndi. Eftir þessa erfiðu reynslu síðasta sólahring þá er hún reynslunni ríkari. KKDG fagnar því að búið sé að opna á þessa umræðu og ætlar ásamt þjálfurum að vinna að lausnum á því að svona atvik komi ekki aftur upp og skorar á önnur félög að fara í slíka vinnu.

KKDG styður heilshugar við bakið á þjálfaranum sem hefur mikinn metnað fyrir þjálfun. Deildin hefur verið mjög sátt við hennar störf innan félagsins. Þjálfarinn nýtur mikils stuðnings bæði stelpnanna og foreldra þeirra. Við viljum að það komi skýrt fram að leikmenn 9. flokks Grindavíkur gerðu ekkert rangt um helgina, þær einfaldlega spiluðu eins og þjálfarinn lagði upp með.

KKDG vill hinsvegar nota tækifærið og lýsa yfir mikilli óánægju með að atburðir helgarinnar séu settir fram á þennan hátt inn á opna facebook síðu, þar sem dregin er upp dökk mynd af þeim. Í færslunni lýsir þjálfari Njarðvíkur með ófögrum orðum hvernig hann upplifði orð þjálfarans og látbragð hennar og lýsir svo hárri fimmu í enda leiks sem fagnaðarlátum.  Aðrir aðilar sem voru á þessum umrædda leik upplifðu orð þjálfarans og látbragð hans ekki á sama hátt og færsluhöfundur lýsir.

Inntak ofangreindrar facebookfærslu, taka þjálfari og KKDG til sín og ætla að bregðast við, eins og að framan greinir. Annað í þessari færslu fordæmir KKDG og þykir leitt hvernig umræðan hefur þróast. KKDG þykir leitt hvað þjálfari og leikmenn 9. flokks bæði Grindavíkur og Vals hafa fengið neikvæða athygli.

Við hreinlega skiljum ekki tilganginn með þessari færslu nema verið sé að reyna að koma slæmu orði á þjálfara félagsins og félagið sjálft. Einnig skapar þessi færsla á Facebook neikvæða umræðu um körfuboltagreinina sem slíka, og þá sérstaklega kvennamegin. Ef umhyggja greinarhöfundar hefði verið einlæg í ljósi áratuga reynslu af körfubolta, hefði umræðan ekki verið sett í þennan farveg. Þetta mál hefði auðveldlega verið hægt að leysa á betri og mun faglegri hátt.

Þjálfarar,iðkendur og aðrir sjálfboðaliðar yngri flokka KKDG hafa unnið frábært starf síðustu árin en lítið af þeim góðu hlutum hafa ratað í fjölmiðla landsins.

KKDG mun áfram leggja sitt af mörkum að vinna að hag körfuboltans á Íslandi.

Með von um áframhaldandi jákvæð og skemmtileg samskipti milli félaga.

Með körfuboltakveðju.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×