Innlent

Fundu á annað hundrað grömm af kannabisefnum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Lögreglan á Suðurnesjum handtók fíkniefnasala og tvo kaupendur um helgina. Jafnframt lagði lögreglan hald á á annað hundrað grömm af kannabisefnum á heimili fíkniefnasalans.

Þá segir í tilkynningu frá lögreglunni að annar maður hafi verið handtekinn um helgina og á heimili hans hafi fundist meint kannabisefni og amfetamín. Einnig var einstaklingur innan við tvítugt handtekinn og var hann með fíkniefni í vörslum sínum. Málið var tilkynnt til barnaverndar vegna ungs aldurs hans.

Í gær missti ökumaður stjórn á bíl sínum í hálku og velti bílnum í Keflavík. Ökumaðurinn komst af sjálfsdáðum út úr bílnum, en var vankaður og skorinn á höndum. Hann var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×