Lífið

Horfðu á stefnumót ársins: Snorri í kjólfötum, Manúela í rauðum kjól og þetta endaði með kossi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrsta date fór vel.
Fyrsta date fór vel. vísir
Einhverjar skærustu stjörnur samfélagsmiðlanna á Íslandi, Manúela Ósk Harðardóttir og Snorri Björns, fóru á stefnumót sitt í gærkvöld og þurfti kannski ekki að koma á óvart að greint var frá gangi mála bæði á Twitter og Snapchat allt stefnumótið.

Greint var frá því í fyrra að þau Snorri og Manúela ætluðu á stefnumót, en samskipti þeirra hófust á Twitter þegar Manúela tísti eftirfarandi: „Hver er Snorri Björns, af hverju er ég með hann á Snap og ætli hann vilji byrja með mér? #crushin.“ Snorri var snöggur að svara og bauð Manúelu á stefnumót.

Stefnumótið virtist fara nokkuð vel í gærkvöldi en Snorri mætti í kjólfötum og Manúela í rauðum og fallegum kjól. Þau borðuðu saman á Sushi Samba í Þingholtsstrætinu.

Snorri er fæddur árið 1994 en Manúela er fædd árið 1983 og því er töluverður aldursmunur á þeim. Hann var aftur á móti mikill herramaður í gær og hagaði sér einstaklega vel. Manúela gaf Snorra eldheitan koss á kinnina undir lokin og var drengurinn mjög sáttur með.

Notendanafn Snorra á Snapchat: snorribjorns

Notendanafn Manúelu á Snapchat: manuelaosk

Hér að neðan má horfa á Snapchat-sögu Snorra. 

 

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.