Bílar

Bestu bílar Consumer Reports í 10 flokkum

Finnur Thorlacius skrifar
Honda Jazz þótti bestir í flokki lítilla fólksbíla.
Honda Jazz þótti bestir í flokki lítilla fólksbíla.
Consumer Reports í Bandaríkjunum hefur birt lista yfir þá 10 bíla sem þykja skara framúr í hverjum flokki bíla. Byggir val Consumer Reports á útkomu úr reynsluakstri, áreiðanleika bílanna, ánægju eigenda og öryggi þeirra. Í flokki minnstu bílanna trónir efstur Honda Jazz og þykir honum helst til tekna hve eyðslugrannur hann er og á viðráðanlegu verði.

Subaru Impreza.
Í flokki næst minnstu bílanna varð Subaru Impreza efstur og þykir hann afar notadrjúgur bíll með sitt góða fjórhjóladrif og innrétting bílsins þykir skara framúr öðrum bílum í þessum flokki. Góður árangur hjá Subaru, sérstaklega í ljósi þess að von er á nýrri kynslóð bílsins og þessi því farin að eldast aðeins.  

Toyota Camry.
Í stærðarflokknum fyrir ofan er Toyota Camry á toppnum og vegur þyngst hversu eigendur hans eru ánægðir með bílinn, en hann þykir þó ekki skara framúr á neina tilteknu sviði en er þó góður á þeim öllum.  

Subaru Forester.
Í flokki minni jepplinga hefur Subaru Forester vinninginn og líkt og með Imprezuna þykja drifgeta og akstureiginleikar hans, sem og innanrými til fyrirmyndar og ekki skaðar gott verð.  

Lexus RX.
Í flokki lúxusjepplinga er efstur á blaði Lexus RX og þykir djarft útlit hans og gæðasmíð skara framúr. Glæsilegt innanrými og framúrskarandi öryggi hans bæta svo við ánægjuna.  

Mazda MX-5 Miata.
Í flokki sportbíla undir 40.000 dollurum situr Mazda MX-5 Miata á toppi listans og þykir hann gera allt vel og með einstaka aksturseiginleika, auk þess að vera mjög fríður. Þessi bíll virðist hreinlega lltaf vera á toppnum er kemur að litlum sportbílum.  

Chevrolet Impala.
Í flokki stærri fólksbíla er Chevrolet Impala sigurvegarinn og þykir hann frábær akstursbíll, ekki síst á lengri leiðum og innanrými hans og stjórntæki frábær.  

Kia Sorento.
Í flokki stærri jepplinga hafði Kia Sorento sigur og eiga góðir aksturseiginleikar og vönduð innrétting þar stærstan þátt. Mikið val á innréttingarútfærslum, vélum og hvort hann sé 5 raða 7 sæta skaðaði svo ekki. 

Ford F-150.
Í flokki pallbíla situr efstur langsöluhæsti bíll í Bandaríkjunum, Ford F-150 og þykir smíði hans vönduð (að mestu úr áli), innrétting falleg og stjórntæki og upplýsingakerfi til fyrirmyndar. Í flokki fjölnotabíla vann svo Toyota Sienna og vinnur gott innanrými mikið með honum og það hverju hljóðlátur hann er að innan.






×