Enski boltinn

Yaya Toure mættur aftur og tryggði hann City sigurinn gegn Palace | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Crystal Palace og Man. City mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag og náðu gestirnir í City þrjú stig með 2-1 sigri.

Yaya Toure kom gestunum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var staðan 1-0 fyrir City í hálfleik.

Connor Wickham jafnaði metin fyrir Palace á 66. mínútu og var útlitið nokkuð bjart fyrir lið Crystal Palace.

Yaya Toure var aftur á móti ekki á því að gera bara jafntefli og skoraði hann annað mark sitt í leiknum á 83. mínútu leiksins og tryggði liðinu stigin þrjú.

City er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig en Palace í því 16. með 11 stig. Þetta er fyrsti leikurinn sem Yaya Toure  spilar fyrir City á tímabilinu en hann hefur verið út í kuldanum hjá Pep Guardiola stjóra liðsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×