Berst við írska strauma Sólveig Gísladóttir skrifar 1. júlí 2017 11:00 Landslagið á Írlandi er ægifagurt enda þykir kajakfólki afar spennandi að róa við Írlandsstrendur. Veður geta þó verið válynd og straumarnir erfiðir.
Guðni Páll Viktorsson er rúmlega hálfnaður í kajakróðri sínum í kringum Írland. Ferðin hefur tekið lengri tíma en áætlað var vegna vályndra veðra og óhentugra strauma en hann vonast til að klára á næstu tveimur til þremur vikum.Fyrir utan eina írsku höfnina tók Guðni Páll eftir fljótandi hvítum strigaskóm. Hann veiddi þá upp úr og ákvað að taka þá með sér í land. Þar hitti hann á stúlku sem var miður sín að leita að skóm sem hún hafði gleymt í fjörunni kvöldið áður. Sú var alsæl að hitta á Guðna Pál og endurheimta skóna sína.Guðni Páll og þrír félagar hans, Breti og tveir Írar, lögðu af stað 5. júní frá Kinsale, skammt frá Cork. Nú fjórum vikum síðar eru þeir komnir til Portnablagh en hafa setið þar fastir í tvo daga vegna veðurs. Raunar hefur kvarnast úr hópnum þar sem einn félaga hans þurfti að hætta vegna meiðsla. Guðni Páll hefur lengi stundað kajakróður og reri einn í kringum Ísland fyrir fjórum árum. Hann segir þó mun erfiðara að róa í kringum Írland. „Ferðin hefur gengið mun hægar en við áætluðum. Aðallega vegna veðurs en svo eru straumarnir hér allt öðruvísi en á Íslandi. Hérna getum við nánast eingöngu róið með réttu falli (með strauminn með okkur) og því höfum við stundum bara 6 til 7 tíma á dag til að róa. Heima getur maður róið í 10 til 12 tíma án vandræða,“ útskýrir Guðni Páll. Nú eru þeir félagar að nálgast vesturströnd Írlands og þá vonast þeir eftir sunnanvindi í bakið.Dýralífið er fjölbreytt við strendur Írlands. Hér fylgjast nokkrir forvitnir selir með ræðurunum fara hjá en virðast lítið kippa sér upp við truflunina.Guðni Páll segir Írland afar fallegt land og heillandi fyrir kajakfólk. Veðrið hefur á tímum leikið við þá félaga og ferðin í heild verið mjög ánægjuleg þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og erfitt sjólag á köflum. „Fyrir nokkrum dögum fengum við höfrungasýningu í þrjú korter á meðan við vorum að róa og það var frábær upplifun. Svo er landslagið hérna algjörlega magnað.“Carrick-a-Rede kaðalbrúin á Norður-Írlandi er mjög vinsæll ferðamannastaður. Brúin tengir meginlandið við hina örsmáu eyju Carrickarede. Brúin er 20 metrar og er í 30 metra hæð.Hann segir Íra afar gestrisna. „Það er sama hvert við komum, maður upplifir sig velkominn og allir eru tilbúnir að gera allt fyrir okkur.“ Kajakróður er án efa afar krefjandi líkamlega en hvernig er andlega hliðin? „Þetta hefur vissulega tekið mikið á líkamlega og maður er farinn að finna fyrir þreytu og stirðleika alls staðar. En það er ekkert miðað við andlega hlutann. Ég hef oft þurft að berjast við sjálfan mig bara til að halda haus. Ég vissi fyrir þessa ferð að þetta yrði mjög erfitt, en að vera burtu frá fimm mánaða dóttur minni er það erfiðasta sem ég hef gert hingað til,“ segir Guðni Páll en tekur fram að hann eigi gott fólk heima fyrir sem geri honum lífið léttara með hjálp tækninnar. Þeir félagar vonast til að geta lagt aftur af stað fljótlega og búast við að klára hringinn á tveimur til þremur vikum ef allt gengur upp.Höfrungar léku listir sínar fyrir þá félaga í nærri klukkutíma.Guðni Páll nýtir átakið til vekja athygli á starfi Umhyggju, félagi langveikra barna. Þeir sem vilja styrkja sjóðinn með framlögum geta lagt inn á eftirfarandi reikning: Reikningur: 0101-15-371646 Kennitala: 691086-1199Ferðafélagar kajakræðaranna á hafi úti eru af ýmsum toga.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira