Lífið

Logi Pedro og Þórdís eiga von á barni: „Þó svo að við séum ekki lengur saman þá fær gleði og kærleikur að ríkja“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábærar fréttir.
Frábærar fréttir.
 „Við Dísa eigum von á barni saman núna í byrjun október. Þó svo að við séum ekki lengur saman þá fær gleði og kærleikur að ríkja og við erum bæði spennt fyrir komandi árum. Við hittumst fyrst fyrir rúmum áratugi á kórkynningu MH og urðum ógeðslega skotin í hvort öðru. Og viti menn, hér er komið enn eitt MH kórbarnið,“ segir tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson á Facebook.

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Reykjavíkurdóttir, og Logi eiga von á barni saman en þau eru ekki í sambandi.

Þórdís greinir sjálf frá þessu á Twitter. 

„Ég og Logi verðum foreldrar í október. Skrítið að hugsa til þess að ég verði mamma einhvers. En vá hvað ég hlakka til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.