Lífið

Kynntist fósturkerfinu persónulega og ákvað að gera þáttaröð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sindri kynntist fósturkerfinu persónulega.
Sindri kynntist fósturkerfinu persónulega.
„Þetta var gjörsamlega nýr heimur fyrir mér og ég þurfti að fara í mikla sjálfsskoðun líkt og allir þeir sem ákveða að gerast fósturforeldrar. Eftir að hafa kynnst kerfinu persónulega, fengið barn í fóstur sem ég svo ættleiddi, ákvað ég að gera þáttaröð um málefnið, sem lítið hefur verið rætt um hingað til,“ segir Sindri Sindrason sem fer af stað með þáttaröð um fósturbörn þann 10. október nk., en um 350–380 börn á Íslandi eru í fóstri, flest hjá vandalausum.

„Af hverju geta þessi börn ekki fengið að búa heima hjá mömmu sinni og pabba, hvað hefur eiginlega gengið á? Svörin eru jafn mismunandi og málin eru mörg en þetta er ótrúlega falið kerfi og það eru miklar ranghugmyndir um það,“ segir Sindri sem fer ítarlega í málið í þáttaröðinni þar sem við fáum að heyra átakanlegar sögur.

„Við heyrum ólíkar sögur fósturbarna, kynforeldra og fósturforeldra. Þá kynnumst við skólakerfinu og hvernig það bregst við þessum börnum og fáum einnig að heyra frá félagsráðgjöfum sem vinna að barnaverndarmálum, sem er mjög krefjandi starf. Þarna er um að ræða fólk sem ekki má tjá sig um málefni barnanna vegna trúnaðarskyldu. Við fáum því oftast að kynnast þessum málum sem rata í fjölmiðla einungis frá kynforeldrum þessara fósturbarna“, segir Sindri, og bætir við að þetta verkefni sé svo sannarlega öðruvísi en þau sem hann hefur unnið að til þessa.

Fósturbörn hefst í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.