Jón Gnarr fékk óvænta fimmtugsafmælisveislu: Segist vera best gifti maður í heimi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 2. janúar 2017 19:00 Jóga og Jón Gnarr vinna mikið saman. Vísir/Eyþór
Þúsundþjalasmiðurinn Jón Gnarr fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Af því tilefni komu hans nánustu aðstandendur honum rækilega á óvart í gær með óvæntri afmælisveislu. Var Jón lokkaður að ljósmyndaskólanum þar sem Frosti sonur hans ætlaði að fá bíl foreldra sinna lánaðan. „Fyrir utan skólann hittum við Sigurjón Kjartansson en sonur hans hafði verið við nám í skólanum. Ég var því algjörlega klúless þegar ég labbaði innum dyrnar og hópur fólks æpti: SÖRPRÆS!“ skrifar Jón í færslu á Facebook síðu sinni sem hann birti í gær. „Jóga mín hafði skipulagt þetta vegna fimmtugsafmælisins míns á morgun. Þetta var líka afmælisveisla fyrir Frosta sem varð þrítugur fyrir nokkrum dögum. Og líka fyrir Fálka litla afastrák sem á einmitt sitt fyrta afmæli á morgun, fæddur sama dag og ég. Mér brá svo mikið að ég var í hálfgerðu sjokki. En ég jafnaði mig fljótt að vera með öllu þessu yndislega fólki sem eru vinir mínir og fjölskylda.“ Í uppistandi sínu Ég var einu sinni nörd frá árinu 2000 talaði Jón um hve erfitt væri að eiga afmæli 2. janúar, sem oft er uppnefndur Vörutalningadagurinn. Þar sagðist hann oft hafa fengið heldur ómerkilegar afmælisgjafir og má með sanni segja að Jóga hafi náð að bæta upp fyrir það en Jón virðist vera mjög snortinn vegna veislunnar.Sjá einnig: Jón lýsir týpískum ADHD-degi: Eiginkonan hálfgerður stuðningsfulltrúi í aukavinnu Jón fer einnig fögrum orðum um Jóhönnu Jóhannsdóttur eða Jógu, eiginkonu sína, sem skipulagði veisluna og telur sig vera best gifta mann í heimi. Þau hjónin vinna mikið saman og unnu saman bæði að Borgarstjóranum og Áramótaskaupinu en næsta verkefni þeirra hjóna er að skrifa bók saman í Texas í Bandaríkjunum. „Mitt hjónaband er mín mesta gæfa í lífinu. Án Jógu væri ég svo tíndur. Ég ku vera Íslandsmeistari í athyglisbresti. Ég er að auki með einhverja ógreinda bresti að auki og svo sérkennilegt mígreni sem hefur furðulegustu einkenni. Menn eins og ég fara yfirleitt tómar villigötur ef þeir hafa engan til að halda í hendina á. Við grínumst stundum með að hún sé stuðningsfulltrúi minn. Hún er það. En hún er líka sálufélagi minn og besti vinur. Og vinnufélagi. Og magnaðasta manneskja sem ég hef nokkurn tíman hitt, lesið eða heyrt um. Það er bara þannig. Ég held ég sé ekki bara best gifti maður á Íslandi heldur jafnvel í öllum heiminum.“
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira