Innlent

Stefnir Icelandair vegna uppsagnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Konan hafði sagt upp fyrri vinnu til þess að geta hafið störf hjá Icelandair. Lögmaður hennar segir að hún hafi upplýst fyrirtækið um sjúkdóminn strax í upphafi. Engar athugasemdir hafi verið gerðar fyrr en seinna.
Konan hafði sagt upp fyrri vinnu til þess að geta hafið störf hjá Icelandair. Lögmaður hennar segir að hún hafi upplýst fyrirtækið um sjúkdóminn strax í upphafi. Engar athugasemdir hafi verið gerðar fyrr en seinna. VÍSIR/VILHELM
Ungri konu sem sótt hafði starfsþjálfun hjá flugfélaginu Icelandair haustið 2015 var vikið burt eftir að hún hafði lokið undirbúningi fyrir starfið. Konan hefur nú stefnt flugfélaginu vegna brottvikningarinnar.

Gísli Tryggvason, lögmaður konunnar, segir hana hafa sótt um starf flugfreyju og tekið fram strax í upphafi að hún væri með taugasjúkdóm sem haldið væri niðri með lyfjum og hún væri því einkennalaus. „Það var ekki gerð athugasemd við það. Síðan löngu síðar verður breyting á,“ segir Gísli, en í millitíðinni hafði hún fengið skriflega staðfestingu um starfið.

Gísli útskýrir að þegar liðið var á fyrri hluta námskeiðsins hafi hjúkrunarfræðingur á vegum Icelandair haldið fyrirlestur um viðbrögð við heilsubresti farþega. Þar var meðal annars til umfjöllunar flogaveiki. Í kjölfar fyrirlestrarins gekk unga konan á fund hjúkrunar­fræðingsins og upplýsti að hún væri greind flogaveik og tæki lyf við sjúkdómnum. Þá spurði konan hvort sjúkdómurinn hefði einhver áhrif á störf hennar hjá Icelandair, sem hjúkrunarfræðingurinn svaraði neitandi með vísan í það að konan hafi ekki fengið flogakast í meira en fimm ár. En síðar var konunni sagt að hún fengi ekki starf hjá fyrirtækinu.

„Þetta snýst um starfsgengisskilyrði fólks með einkennalausa greiningu og hins vegar snýst þetta um hvernig Icelandair stendur að upplýsingaskyldu og starfslokum,“ segir Gísli. Hann segir þetta ígildi uppsagnar og ekki hafi náðst samkomulag um upphæð bóta. Hann bendir jafnframt á að konan hafi sagt upp fyrra starfi sínu fyrir starf hjá Icelandair.

Konan leggur fram kröfu vegna launa í starfsnámi, vegna vangoldinna launa, vegna launa á uppsagnarfresti og vegna greiðslu útlagðs kostnaðar. Þá er krafa vegna greiðslu skaða- og miskabóta. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×