Lífið

Allir falla fyrir Balí

sæunn gísladóttir skrifar
Tobba Marinós ásamt Karli, manni sínum, og Regínu, dóttur þeirra, á Balí. Þau dvöldu fyrst í mánuð á Balí en eftir heimkomu vildu þau snúa aftur og fóru í tvo mánuði í viðbót.
Tobba Marinós ásamt Karli, manni sínum, og Regínu, dóttur þeirra, á Balí. Þau dvöldu fyrst í mánuð á Balí en eftir heimkomu vildu þau snúa aftur og fóru í tvo mánuði í viðbót.
Davíð Sigurþórsson kafari er hrifinn af köfun við Balí.
Ferðasíðan TripAdvisor útnefndi Balí í byrjun árs sem besta áfangastað í heimi á þessu ári. Margir ferðalangar hafa heillast af eyjunni og eru Íslendingar svo sannarlega þar í flokki. Davíð Sigurþórsson kafari, Tobba Marinósdóttir fjölmiðlakona og Þórhildur Þorkelsdóttir fréttamaður segja frá eyjunni sólríku og gefa góð ráð.

Eins og annar heimur

Davíð Sigurþórsson kafari segir Balí henta vel bæði reyndum köfurum og byrjendum og mun stýra fjórtán daga ferð þangað með ferðaþjónustufyrirtækinu Farvel í október. „Þetta er eins og að ferðast í annan heim og ógleymanleg upplifun,“ segir Davíð um þá reynslu að kafa við strendur Balí. „Þarna eru ægifögur kóralrif , með þeim heilbrigðari á heimsmælikvarða, og skrautfiskar af öllum gerðum.





Köfun við strendur Balí þykir magnað ævintýri.
Hvað finnst honum mest spennandi? „Það er svo margt að sjá, fyrir utan að þetta eru einhverjar fegurstu slóðir sem er hægt að kafa á og aðstæður hinar þægilegustu. Þá er hægt að kafa að sögufrægum skipsflökum. Það er magnað að sjá stóra skötu fara hjá og furðufiskurinn mola mola er ógleymanleg sjón. Ég held ég geti fullyrt að hver einasta manneskja verði fyrir nokkurs konar hugljómun við það að kafa. Sjá þennan hulda heim sem við búum þó í,“ segir Davíð sem talar af reynslu því hann bjó og starfaði sem köfunarkennari og fararstjóri í Suðaustur-Asíu um árabil. „Þetta er miklu minna mál en fólk heldur og alveg kjörið að læra að kafa við þessar aðstæður,“ segir hann frá.

Davíð segir fjölbreytileika Balí líklega það sem heilli ferðalanga mest. „Það er framandi menningin og lífið á Balí. Fólkið þarna er einstakt, vingjarnlegt og afslappað. Náttúran er stórkostleg og þótt Balí sé fjölsóttur ferðastaður þá eru þarna margar nánast ósnortnar perlur og verðlagið frábært. Ég get nefnt sem dæmi strandlengjuna Amed sem er á Norðaustur-Balí. Þar eru nokkur sjávarþorp sem eru ekki fjölsótt af ferðamönnum, þar er meginuppistaða ferðaþjónustu köfun og lítið um djamm eða næturlíf. Til þess eru aðrir staðir í nágrenninu,“ segir Davíð.





Friðsæld við ströndina.
Ubud í uppáhaldi

Þorbjörg Marinósdóttir fjölmiðlakona, betur þekkt sem Tobba, er sérstök áhugakona um Balí og hefur á síðustu árum orðið ráðgjafi fyrir marga sem eru að fara þangað. Hún fór fyrst til Balí í fæðingarorlof árið 2015 ásamt Karli Sigurðssyni manni sínum og Regínu dóttur þeirra og áætlar að síðan þá hafi hún veitt hátt í 200 Íslendingum ráðgjöf sem vildu ferðast þangað.

„Við fórum fyrst í mánuð og ástæðan fyrir því að við völdum Balí var að mjög margt fólk í kringum okkur sagði Balí stórkostlegasta staðinn sem þau höfðu komið á. Þannig að við ákváðum að skella okkur þangað þegar Regína var sex mánaða,“ segir Tobba.

„Svo komum við heim og mér leið bara alveg ömurlega þannig að við fórum í það að koma okkur aftur út. Við fundum okkur verkefni og litla systir mín kom með til að passa svo við gátum unnið í okkar verkefnum. Þá vorum við í tvo mánuði. Þannig að þegar Regína var eins árs hafði hún dvalið þrjá mánuði á Balí.





Neðansjávar er margt að sjá.
Ég er að fara aftur í október með skipulagða ferð og það er nánast uppselt í hana þannig að það er greinilega mjög mikill áhugi á Balí,“ segir hún.

Tobba segir að ýmsu að huga ef ferðast er til Balí, sérstaklega með börn. Þar sé öðruvísi menning en á Íslandi hvað börn varðar, það sé til dæmis sjaldgæft að sjá barnakerrur eða barnastóla þar sem Balíbúar halda gjarnan á börnum sínum.

„Við höfum dvalið mest í Ubud sem er listamannaþorp,“ segir Tobba, sem hefur gríðarlega góða reynslu af þeim stað. „Svo höfum við farið á meiri ferðamannastaði við ströndina og það er í eina skiptið sem við lentum í því að vera snuðuð.

Ég er rosalega hrifin af Ubud. Ég er ekki strandafíkill og þarna ertu með hreinar og fallegar sundlaugar. Þarna er æðislegur matur og ofboðslega gott fólk og fallegir listmunir. Þar er mjög ódýrt að vera, á besta steikarstaðnum kostar steikin 1.100 krónur,“ segir Tobba.

Balí góð fyrir veskið

Hún segir gott fyrir veskið að vera á Balí. „Það er dýrt að koma sér út en mjög ódýrt að lifa þarna,“ segir Tobba. Nóg sé þar um að vera. „Það er mjög mikið um ofboðslega góð matreiðslunámskeið, maður lærir að elda karrírétti og alls konar hrísgrjónarétti. Það er líka mikið um jóga og dans, sem og ofboðslega fallegar gönguleiðir.“

Tobba lýsir allt öðruvísi hugarfari á Balí en á Íslandi. Hún sagði til dæmis upp vinnunni á Íslandi þegar hún sat í núðlusjoppu því henni leið eins og hún þyrfti að vinna minna og njóta meira. „Fólk endurmetur oft líf sitt á Balí því þar er allt öðruvísi hugsunarháttur. Það skiptir ekki máli hvað þú átt heldur hvernig þú hagar þér og hvað þú ætlar að fá út úr lífinu. Þarna gerirðu bara það sem þú nennir að gera og ef það gleymist þá bara gleymist það.“





Þórhildur Þorkelsdóttir fréttakona í Indónesíu.
Margir sem Tobba hefur aðstoðað hafa farið í fæðingarorlof til Balí. Hún bendir fólki á sem hefur áhuga á að fara þangað að það þurfi að fara í ákveðnar sprautur áður og því ekki mælt með að börn fari fyrr en eftir sex mánaða skoðun. Einnig sé sniðugt að taka með ákveðinn barnamat héðan þar sem tíðkast mest að börn borði avókadó og banana úti. Svo sé mjög sniðugt að panta sér barnarúm fyrirfram fyrir langa flugið út, en það er oft í boði í stærri vélum. „Ég myndi svo mæla með að fólk nái að redda sér Deet spreyi út af moskítóflugunum.“

Að lokum bendir Tobba á að þó að lítið mál sé að vera í lengri tíma á Balí fái maður bara 30 daga leyfi í einu þar. „Til að vera lengur þarftu annaðhvort að redda þér vísa eða fljúga til Singapúr sem tekur 1,5 tíma og dvelja þar í nokkra daga og koma svo aftur.“

Mælir með að heimsækja hinar eyjarnar

Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttakona á Stöð 2, fór í þrjár vikur til Indónesíu í byrjun 2016 og ferðaðist um með vinkonu sinni. Hún var hrifin af Balí en hvetur fólk eindregið til að skoða aðrar eyjar Indónesíu.

„Við fórum til Balí og vorum á nokkrum stöðum þar en fórum svo á aðrar eyjar líka. Mig var búið að langa til að fara til Balí mjög lengi, ég hafði heyrt fólk tala vel um eyjuna og veðrið og landslagið heillaði mig,“ segir Þórhildur.

Hún segir staðinn hafa algjörlega staðist væntingar. „Mér fannst gaman á Balí en mér fannst hinar eyjarnar samt meira ævintýri, sérstaklega Lombok. Þar er brimbretta­paradís og þar er hægt að fara í skemmtilegar göngur og skoða afskekkt svæði.

Eyjarnar í kring um Balí stóðu í rauninni upp úr hjá okkur. Það er auðvelt að fara þangað, það eru bara nokkurra klukkustunda bátsferðir,“ segir Þórhildur.





Þórhildur Þorkelsdóttir fréttakona ásamt vinkonu sinni í Indónesíu. Þær ferðuðust víða á þremur vikum.
„Ég hef ferðast dálítið um Suðaustur-Asíu og helsti munurinn á þeim löndum og Balí er að fólkið er svo yndislegt á Balí. Þeir trúa að þeir verði verðlaunaðir fyrir hvernig þeir koma fram við náungann. Það er svo gott fólk þarna og ef maður hefur áhuga á því er auðvelt að kynnast innfæddum,“ segir Þórhildur.

Hún lenti í því að týna veskinu sínu á bar á Gili-eyjum og þegar hún kom aftur tveimur dögum seinna var henni skilað því með öllum kortum og peningum ofan í. „Barþjónninn spurði mig bara hvar ég hefði verið og sagðist vera búinn að bíða eftir mér þar sem ég hefði týnt veskinu.“

Þórhildur segir eitt mest spennandi við svæðið vera hve fjölbreytt afþreying sé í boði. „Það er hægt að fara í svaka jógaafslöppunarferð eða vera mjög aktívur, fara í fjallgöngur, alls konar göngur, í kajakróður og að snorkla. Svo er hægt að vera í algjörri afslöppun og með börn þarna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×