Lífið

Konurnar í lífi Harry Bretaprins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ástir og örlög Harry Bretaprins.
Ástir og örlög Harry Bretaprins. Vísir / Getty Images
Harry Bretaprins og kanadíska leikkonan Meghan Markle opinberuðu trúlofun sína í gær en þau hafa verið saman síðan í júní árið 2016. 

Harry og Meghan voru leidd saman af sameiginlegum vini á blindu stefnumóti og hafa verið óaðskiljanleg allar götur síðan.

Harry hefur átt vingott við ýmsar konur í gegnum tíðina, stutt jafnt sem löng sambönd sem hafa vakið heimsathygli.

Harry og Ellie á góðri stundu.Vísir / Getty Images

Á eftir flökkusögum kemur barn

Samband Harry prins og söngkonunnar Ellie Goulding var aldrei staðfest en þau sáust víst kyssast á viðburði í júní árið 2016, stuttu áður en Harry byrjaði með Meghan Markle. 

Sögusagnir um samband Harry og Ellie urðu svo háværar að hún var spurð að því í beinni útsendingu í sjónvarpinu nokkrum mánuðum síðar hvort hún bæri barn hans undir belti. Svarið var einfalt: Nei.

Cressida og Harry.Vísir / Getty Images

Of mikil athygli

Bretaprinsinn deitaði leikkonuna, dansarann og fyrirsætuna Cressidu Bonas á árunum 2012 til 2014. Sagan segir að frænka Harry, prinsessan Eugenie, hafi kynnt þau tvö.

Cressida lét hafa eftir sér eftir að þau hættu saman að henni hafi fundist athyglin á sambandið vera of mikil þar sem hún var einnig að einbeita sér að því að skapa sér nafn í leiklistarheiminum.

Mollie King talaði víst of opinskátt um samband sitt og Harry.Vísir / Getty Images

Búið spil

Saturdays-söngkonan Mollie King sagðist hafa fengið sér drykk með Harry árið 2012. 

Síðar fréttist það að Harry hefði slitið sambandinu út af því að Mollie hafði verið of opin með samband þeirra.

Florence.Vísir / Getty Images

Frá prins í milljarðamæring

Fyrirsætan Florence Brudenell Bruce var í tygjum við Harry um tíma árið 2011 en sambandinu lauk þegar Harry byrjaði í þyrluþjálfun í hernum.

Florence gekk síðar að eiga vellauðuga kaupsýslumanninn Henry St. George.

Caroline Flack.Vísir / Getty Images

Það er ekkert X í ást

X Factor-kynnirinn Caroline Flack ku hafa átt vingott við Harry Bretaprins árið 2009, en þau kynntust í gegnum sameiginlega vini.

Í bók sinni Storm in a C Cup skrifar Caroline að þau hafi þurft að slíta sambandinu þegar fréttist af því í fjölmiðlum.

Chelsy og Harry skemmtu sér vel saman.Vísir / Getty Images

Haltu mér, slepptu mér

Lögfræðingurinn og skartgripahönnuðurinn Chelsy Davy og Harry voru saman, með hléum, á árunum 2004 til 2010. Chelsy var meira að segja gestur í brúðkaupi bróður Harry, Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton.

Astrid er vinkona Kate Middleton.Vísir / Getty Images

Óvíst um samband

Harry var sagður eiga í rómantísku sambandi við athafnakonuna Astrid Harbord árið 2009 eftir að þau sáust saman í London.

Astrid er vinkona Kate Middleton en samband hennar og Harry var aldrei staðfest.


Tengdar fréttir

Meghan Markle frumsýndi trúlofunarhringinn

Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle eru trúlofuð en þetta kom fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni í morgun.

Velur ástina fram yfir Suits þættina

Samkvæmt breskum slúðurmiðlum hefur leikkonan Meghan Markle tilkynnt framleiðendum Suits að hún muni ekki leika í fleiri þáttaröðum.

Hver er Meghan Markle?

Harry Bretaprins og Meghan Markle munu ganga í hjónaband næsta vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.