Eyjamenn nota olíu í meira mæli Sveinn Arnarsson skrifar 20. apríl 2017 07:00 Raforkuframleiðsla mun aukast gríðarlega í maí með komu kolmunna til hafnar. vísir/pjetur
Olía er notuð í meiri mæli en áður í Vestmanneyjum til þess að framleiða rafmagn eftir að bilun kom upp í flutningsneti Landsnets. Fram undan er vertíð í kolmunna sem mun stórauka raforkunotkun. Stærsti sæstrengurinn sem liggur milli lands og Eyja hefur verið bilaður síðan 5. apríl síðastliðinn. Komið hefur í ljós að strengurinn hefur að öllum líkindum farið í sundur á miklu dýpi og gert er ráð fyrir að kostnaður verði mikill við að lagfæra strenginn. Á meðan er keyrt á varaflsstöðvum í Vestmannaeyjum og minni sæstrengir hafa flutt orku á milli.Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets.„Strengurinn liggur líklega á 50 metra dýpi þar sem bilunin er talin vera,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets. „Unnið er að því að koma auknu varaafli til Vestmanneyja með færanlegum varaaflsstöðvum. Að mati Landsnets þarf að taka strenginn upp og til þess þarf sérstakt viðgerðarskip að utan. Elliði Vignisson segir nú keyrt meira á olíu en áður en stutt sé í mikilvæga vertíð fyrir Eyjamenn. „Landsnet er á tánum og við kunnum að meta það. Þegar bræðsla og mjölframleiðsla í kolmunna fer af stað eftir mánaðamót er líklegt að við þurfum að keyra þær verksmiðjur að miklu leyti á olíu,“ segir Elliði. Gerð verður rannsókn á strengnum í dag með framleiðendum strengsins til að ganga úr skugga um hvort bilunin sé á landi eða í sjó. Þær mælingar munu síðan veita mikilvægar upplýsingar um hvernig raforkumálum Vestmannaeyjabæjar verður háttað næstu mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Loksins mega hommar gefa blóð Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Fleiri fréttir Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Þrír í haldi í fíkniefnamáli Sjá meira