Lífið

Bein útsending: Harmageddon-bræður ræða atburði helgarinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur og Frosti Logason.
Hildur og Frosti Logason. Vísir/Stefán
Tónlistarkonan Hildur hefur krafið Frosta Logason, útvarpsmann á X-inu um afsökunarbeiðni vegna ummæla sem hann lét falla um lag Hildar og konur í tónlist í útvarpsþættinum Harmageddon á X-977 á föstudaginn.

Lag Hildar, I'll Walk With You, var valið popplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum í vikunni og í þakkarræðu sinni brýndi Hildur íslenskar tónlistarkonur til dáða. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Hildur að hún hafi verið niðurlægð eftir að hafa heyrt Frosta tjá sig um lagið og konur í tónlist í útvarpsþættinum Harmageddon, daginn eftir að Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent. Mikið hefur verið fjallað um málið í íslenskum miðlum um helgina.

Frosti sagði til að mynd: „Lyktin af þessu er sú að Hildur hafi unnið þetta af því að hún er kona,“ og vitnaði meðal annars til þess að lag Aron Can, Enginn mórall, væri með töluvert betri hlustunartölur en lag Hildar.

Tók Frosti fram að lag Hildar væri „ágætt lag“ þó að líklega hefði strákur hjálpað Hildi við lagasmíðina. Bendi þá Þorkell Máni Pétursson, annar þáttastjórnenda Harmageddon að það hefði verið dómnefnd sem hefði ráðið úrslitum um hvaða lag hefði verið valið popplag ársins.

Hildur krefst þess að fá afsökunarbeiðni frá Frosta fyrir þessi orð en Harmageddon hefst núna klukkan 09:00 á X-inu og má hlusta á hann hér.

Harmageddon-bræður gáfu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi sem má lesa hér að neðan:
Hér að neðan má hlusta á umræðuna um Hildi og hennar lag.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.