Segir konur eiga að hafa metnað fyrir því að vera sterkar Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 16. febrúar 2017 11:30 Kristbjörg er að setja fjarþjálfunarvef á laggirnar. Mynd/Kjartan Magnússon
Stronger er fjarþjálfunarkerfi í gegnum vefsíðu. Hver notandi fær sitt svæði þar sem hver dagur er lagður upp í æfingum og mataræði. Síðan er hönnuð með farsíma í huga og hugmyndin er sú að hægt sé að taka símann með sér í ræktina og fylgja prógramminu þar. Það fylgja myndbönd með sem skýra hverja æfingu þannig að ef eitthvað er óskýrt þá er bara hægt að horfa á myndbandið til að fá það á hreint. Mjög einfalt og skýrt,“ segir Kristbjörg Jónasdóttir, einkaþjálfari og tilvonandi eiginkona landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar, spurð út í nýtt þjálfunarkerfi sem kemur á markaðinn í lok mars á þessu ári. „Sumir hafa agann og drifkraftinn til að gera æfa algjörlega án aðstoðar, en öðrum finnst voða þægilegt að fá hvatningu og leiðsögn annars staðar frá. Ég vil meina að Stronger sé frábær lausn fyrir það fólk,“ segir hún. Í æfingakerfinu er ekki lögð áhersla á strangt mataræði heldur mun Kristbjörg deila með notendum hugmyndum og uppskriftum. „Hvað mataræði varðar þá finnst mér mestu máli skipta að fólk skipti út nokkrum hlutum fyrir aðra hollari valkosti. Smávægilegar breytingar geta gert svakalega mikið. Þetta snýst allt um heilbrigðan lífsstíl og að sjálfsögðu að leyfa sér aðeins af og til, annars væri þetta nú ekkert skemmtilegt,“ segir hún.Prógrammið hjá Kristbjörgu kostar 35.000 krónur fyrstu sex vikurnar.Reynslubolti úr fitnessheiminum Kristbjörg keppti í fitness í nokkur ár, með frábærum árangri en meðal annars hafnaði hún í öðru sæti á UK Nationals fitness-mótinu árið 2014 og vann til gullverðlauna á velska meistaramótinu sama ár. Árið 2011 lenti hún svo í 2. sæti á Arnold Classic Europe Bikini Fitness. „Ég lærði mikið á þessum tíma en var alltaf mjög hungruð í að prófa fleiri tegundir af æfingum og líkamsrækt og fór að láta það eftir mér smám saman. Mér hefur alltaf fundist sem það þurfi að vera samræmi milli styrks og útlits. Og mér finnst að konur eigi að hafa metnað fyrir því að vera sterkar,“ útskýrir Kristbjörg og bætir við að mikil hugarfarsbreyting hafi orðið hvað þetta varðar. „Fjölmargar stelpur eru farnar að æfa kraftlyftingar og bardagaíþróttir. Þetta er svo skemmtileg þróun og svo í línu við það hvernig ég sé heiminn,“ segir Kristbjörg. Hugmyndin mótaðist á meðgöngunni „Það var á meðgöngunni þegar ég gekk með strákinn okkar, Óliver Breka, sem er núna á öðru aldursári sem ég fór virkilega að gefa mér tíma til að þróa þetta og safna mér upplýsingum. Það sem vakti fyrir mér var að búa til þjálfunarprógrammið sem ég hefði viljað geta haft aðgang að þegar ég var að byrja að æfa á sínum tíma. Það er mjög fjölbreytt og skemmtilegt og ef því er fylgt þá mun árangurinn ekki láta á sér standa. Það er á hreinu,“ segir hún, og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Hægt er að forskrá sig til að vera með í þjálfunarprógramminu nú þegar á vefsíðu Kristbjargar, krisj.is, en ráðgert er að það hefjist um mánaðamótin mars-apríl.35 þúsund krónur fyrir fyrstu vikurnar „Skráning er ekki formlega hafin, það er bara hægt að forskrá sig og þær sem gera það eru á forgangslista þegar þjálfunin hefst. Ég finn fyrir gríðarlegum áhuga og þegar eru rúmlega fimmtíu konur búnar að forskrá sig.“ Prógrammið hjá Kristbjörgu kostar 35.000 krónur fyrstu sex vikurnar. Eftir það kosta fjórar vikur 22.500 krónur. Aðspurð hvort það sé dýrara en það sem gengur og gerist í fjarþjálfunarheiminum svarar Kristbjörg neitandi. „Stronger er í raun ekki dýrara heldur en gengur og gerist, það er bara dýrara í fyrsta skiptið því að grunnpakkinn í Stronger er sex vikur í stað fjögurra. Ástæðan fyrir því er sú að mér finnst sex vikur vera eðlilegur tími til að koma sér í gang, læra aðferðirnar og rútínur og upplifa þann árangur sem kveikir metnaðinn til að halda áfram,“ útskýrir Kristbjörg.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira