Förðunartískan 2017: Mikill varablýantur og ýkt skygging dettur út Guðný Hrönn skrifar 3. janúar 2017 10:30 Sara Dögg Johansen fer yfir stefnur og strauma í förðun fyrir árið 2017. Mynd/Íris Dögg
Sara Dögg Johansen, eigandi Reykjavík Makeup School, rennir yfir förðunartískuna fyrir árið 2017. Mesta áherslan verður lögð á að hafa húðina sem náttúrulegasta og þá skiptir fallegur ljómi sköpum. Mikill varablýantur sem nær út fyrir varirnar er þá að detta út. Á næsta ári snýst allt um fallega, ljómandi og náttúrulega húð og því minna því betra að sögn förðunarfræðingsins Söru Daggar Johansen. „Léttur farði í bland við rakakrem til að ná fram fallegum ljóma verður aðalmálið. Það að nota engan farða þykir líka flott um þessar mundir, sérstaklega eftir að söngkonan Alicia Keys sagðist vera hætt að nota farða og Kim Kardasian mætti ómáluð á sýningu Balenciaga á dögunum. Fyrir þá sem vilja ekki vera alveg ómálaðir er hægt að fá alls konar fallega farða sem gefa létta þekju og ljóma. Það er líka mjög sniðugt að taka hyljara og setja á aðeins þau svæði sem viðkomandi vill hylja,“ segir Sara aðspurð út í tískustrauma í förðunarheiminum á þessu ári. Ljómandi húð verður sem sagt í aðalhlutverki. „Já, ýktar skyggingar á húðinni fá að víkja fyrir fallegum, mildum skyggingum og bronsaðri, sólkysstri húð.“Á sýningu Blumarine voru fyrirsæturnar með ljómandi húð og kinnalit undir kinnbeinunum.NORDICPHOTOS/GETTYAð sögn Söru kemur kinnalitur með kremáferð sterkur inn á þessu nýja ári enda gefur hann húðinni ljómandi og náttúrulegan lit. „Bleikir tónar verða vinsælli en aðrir enda voru þeir sérstaklega áberandi á tískupöllum fyrir árið 2017. „Draping“ er ný aðferð í förðunarheiminum og snýst um að setja smá kinnalit á þau svæði þar sem skyggt er til að fá smá frísklegra útlit. Sú aðferð verður vinsæl á þessu ári.“ Hvað tískuna í augnförðun fyrir árið varðar þá er létt augnförðun með náttúrulegum skyggingum í hlýjum tónum aðalmálið að sögn Söru. „Fyrir þá sem vilja ýktari förðun er létt „smokey“-augnförðun að koma sterk inn og er fullkomin fyrir fínni tilefni. Og þegar Ariel Tejeda, förðunarfræðingur Kardashian- og Jenner-systra, kom til landsins fyrr á árinu til mín og Sillu í Reykjavík Makeup School þá sagði hann okkur að núna væri vinsælt að hafa lítinn sem engan maskara á neðri augnhárum. „Eyeliner“ með stórum spíss eða væng verður ekki eins vinsæll á næsta ári því „smudge eyeliner“ verður áberandi.“Rauður varalitur er alltaf flottur eins og sjá mátti þegar nýjasta sumarlína Kenzo var sýnd.NORDICPHOTOS/GETTYHvað með varalitatískuna? Mattir varalitir eru að víkja fyrir varalitum með smá gljáa og bleikir tónar verða áberandi. Að sögn Söru er svo rauður varalitur alltaf klassískur. „Já, rauði liturinn heldur áfram að vera vinsæll eins og árið 2016 en einnig koma ferskjulitaðir og bleikir tónar sterkir inn í varalitatískuna 2017. Þetta árið verður ekki eins mikið um matta varaliti því kremaðir varalitir verða meira áberandi. Varasalvinn hefur svo verið einstaklega áberandi á tískupöllunum en með honum færðu fallegar mjúkar varir með smá lit, það er er algjörlega í takt við 2017 tískuna,“ segir Sara sem mælir með varasalvanum frá Maybelline.En hvað dettur úr tísku á næsta ári? „Miðað við það sem maður er að sjá á tískupöllunum erlendis og hjá vinsælustu förðunarfræðingunum þá sýnist mér þrennt vera að detta úr tísku á næsta ári. Það er t.d. svo kallað „baking“ og mikil skygging. Það hefur verið mjög vinsælt síðustu ár. Þá er mikið magn púðurs sett á andlitið og það látið sitja á húðinni í nokkra mínútur. Þetta er gert til að „festa“ farðann betur. En með þessari aðferð verður húðin oft ónáttúruleg og jafnvel þurr,“ segir Sara sem mælir með að nota góðan farðagrunn og svokallað „setting spray“ til að auka endingu farðans í stað þess að notast við „baking“-aðferðina. „Annað „trend“ sem verður minna áberandi á nýju ári eru bláir tónar á augun en blár litur hefur verið einstaklega áberandi á tískupöllunum 2016 en verður ekki eins áberandi á nýju ári,“ segir Sara. „Og annað sem verður ekki eins vinsælt á árinu 2017 er mikill varablýantur. Förðun, þar sem teiknað er með varablýanti út fyrir varirnar til að stækka þær, hefur verið áberandi en verður það ekki áfram. Gott ráð til að láta varirnar virka stærri er að setja varalit í örlítið ljósari tóni á miðjuna á vörunum eða jafnvel smá gloss.“
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira