Úr blaðamennsku yfir í búðarrekstur Guðný Hrönn skrifar 3. janúar 2017 09:45 Erna Hreinsdóttir var að opna partíbúð. Mynd/Kjartan Hreinsson
Fyrrverandi ritstjórinn Erna Hreinsdóttir hefur sagt skilið við blaðamennsku og ritstjórn í bili og snúið sér að búðarrekstri en hún tók nýverið hvatvísa ákvörðun um að opna partíbúð sem ber heitið Pippa. „Þetta gerðist eiginlega bara óvart. Þetta var hugmynd sem kom upp fyrir um tveimur mánuðum,“ segir Erna Hreinsdóttir um nýju partíbúðina sem hún var að opna ásamt Vigdísi Häsler. „Þetta var í raun hugmynd Vigdísar. Hún var nefnilega að halda upp á barnaafmæli og þá tók hún eftir því að það mætti alveg bæta við úrvalið af svona smart samkvæmisvörum. Og þá ákváðum við bara að smella í eina búð,“ útskýrir Erna. Áhersla verður lögð á að vörurnar sem fást í Pippu séu öðruvísi en þær sem fást annars staðar. „Þær eru svolítið sérstakari, þannig að það er kannski augljóst að þær eru frá okkur. Og svo er von á að við gerum okkar eigin vörur, þannig að við munum hanna okkar eigin vörur samhliða. Og þá verður hægt að fá partívörur með íslenskum texta, t.d. servíettur og blöðrur,“ segir Erna sem er menntaður grafískur hönnuður en Vigdís er lögfræðingur.Vöruúrvalið í Pippu fer ört vaxandi. „Já, búðin er að stækka og við erum endalaust að bæta í úrvalið en vinsælar vörur seljast líka hratt upp. Við opnuðum fyrir um viku eða rétt fyrir áramót og þá seldist upp allt áramótadótið okkar, þannig að upphafið fer fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Erna um búðina sem er vefverslun enn sem komið er.Kominn tími á að taka sér pásuErna, sem áður starfaði sem ritstjóri tímaritsins Nýtt líf, er spennt fyrir framhaldinu en hún var tilbúin fyrir breytingu. „Já, ég sagði upp í sumar en ég var búin að vera í átta ár hjá Birtingi, það er svolítið langur tími. Ég vildi bara gera eitthvað nýtt en ég vissi ekkert hvað ég var að fara að gera. Og þar sem ég var laus þá ákvað ég bara að stökkva á þetta tækifæri með Vigdísi.“ „Já, allavega í bili. Ég þurfti að breyta til,“ segir Erna spurð út í hvort henni hafi þótt vera kominn tími til að taka sér pásu frá blaðamennskunni. „En mín upplifun á fólki sem hefur verið í fjölmiðlun er sú að það losnar eiginlega aldrei, þannig að mér finnst líklegt að maður verði eitthvað að skrifa öðru hvoru eða taka þátt í einhverju fjölmiðlastarfi. En ég þurfti bara að taka smá pásu frá þessari blaðaútgáfu,“ segir Erna sem hætti eftir að desembertölublað Nýs lífs kom út. Erna viðurkennir að það sé svolítið skrýtið að hætta í blaðamennsku eftir svo langan tíma. „Já, mjög skrýtið. En þetta er líka mjög skemmtilegt og ákveðin endurfæðing, svolítið eins og að útskrifast úr skóla því ég veit eiginlega ekkert hvað tekur við. Bara nýtt upphaf.“ Að lokum, hver er galdurinn við að halda gott partí? „Galdurinn er að vera góður gestgjafi, hann skiptir öllu máli. Og ef þú ert góður gestgjafi, öllum líður vel og partíaðstaðan lítur vel út þá er ekkert sem getur klikkað.“
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira