Fékk hlaupabólu í gjöf á tíu ára afmælisdeginum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 20. febrúar 2017 11:00 Eftirminnilegasta afmæli Kristins var fyrir þrjátíu árum en þá þurfti að aflýsa veislunni eftir að hann fékk hlaupabólu. vísir/anton
Trommarinn Kristinn Snær Agnarsson fagnar fjörutíu ára afmæli í dag. Lítið verður um hátíðarhöld af því tilefni en afmælisbarnið telur að dagurinn í dag verði nánast eins og hver annar mánudagur. „Ég hugsa að ég fari bara í vinnuna og afgreiði fólk líkt og á venjulegum mánudegi,“ segir Kristinn en hann vinnur sem afgreiðslumaður í Tónastöðinni. Það vill reyndar svo til að samstarfsmaður hans í versluninni á einnig afmæli í dag. „Það gæti verið að við fáum okkur köku í kaffinu. Síðan hefur vinafólk mitt boðið mér í mat.“ Þegar Kristinn er ekki fyrir aftan afgreiðsluborðið í Tónastöðinni má yfirleitt finna hann við trommusettið hjá hinum ýmsu tónlistarmönnum. Í gegnum tíðina hefur hann meðal annars lamið húðir með John Grant, Ásgeiri Trausta, Baggalúti, Megasi, Bang Gang og Jónasi Sig. Eðli málsins samkvæmt fer því mikill tími í að spila á tónleikum vítt og breitt um heiminn. „Ég á náttúrlega afmæli í febrúar og er því rosalega oft að spila á afmælinu sjálfu eða í kringum það, á hinum og þessum árshátíðum eða þorrablótum,“ segir Kristinn. Einnig hefur það komið fyrir að hann er á tónleikaferðalagi erlendis á afmælisdaginn. „Þá er ekki heldur hægt að gera neitt. Maður er bara að spila á tónleikum.“ Aðspurður um eftirminnilegasta afmælisdaginn nefnir tónlistarmaðurinn tíu ára afmælið til sögunnar. Þá hafði heljarinnar veisla verið undirbúin og búið að bjóða fullt af fólki. „Síðan rann afmælisdagurinn upp en þá var ég kominn með hlaupabólu. Það var frekar glatað,“ segir Kristinn og hlær. Veislunni var ekki frestað heldur var hún einfaldlega blásin af. Þrátt fyrir að ekki standi til að halda upp á afmælið núna útilokar Kristinn ekki að gera það síðar. „Það er aldrei að vita nema maður bóki lítinn sal í sumar, bjóði fólki og haldi upp á þetta. Það hentar hins vegar ekki núna.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Sjá meira