Gróðursetja töfratré Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. júní 2017 09:45 Mörður vinnur ötullega að því að gera heiminn betri. Mynd/úr einkasafni
Verkefnið Töfrastaðir vinnur að því að bæta aðstæður fyrir plöntur, dýr og fólk og athafnasetrið Sandar suðursins er stærðar skref í þá átt,“ segir Mörður G. Ottesen, forsvarsmaður Töfrastaða sem taka við landspildu í dag í nágrenni Þorlákshafnar. Samningur um það verður handsalaður með viðhöfn er Mörður aðstoðar Gunnstein R. Ómarsson, bæjarstjóra Ölfushrepps, við að gróðursetja þar töfratré. „Við erum að fá nokkra hektara lands þar sem nú er aðallega sandur, hraun, lúpína og pínulítið melgresi,“ útskýrir Mörður sem kveðst vilja hafa lúpínuna. „Ég vil allt lífrænt sem græðir landið, lúpínan vex ekki hátt út af vindinum hér og við munum örugglega skera hana niður einu sinni eða tvisvar yfir sumarið, þá myndar hún jarðveg. Svo fáum við einn farm af moltu á viku frá Íslenska gámafélaginu og síðan fáum við líka vörubretti og munum búa til skjól fyrir plöntur með þeim. Einnig fáum við eitthvað af kurli.“ Til að festa vörubrettin þannig að þau fjúki ekki kveðst Mörður líka fá strigapoka utan af kaffibaunum. „Við munum festa pokana á vörubrettin og setja þyngsli í þá til að halda þeim niðri. Við reynum líka að hafa brettin þannig að þau brjóti vindinn því hann kemur úr öllum áttum og við verðum með bretti fyrir allar áttir. Það hentar okkur þar sem við kennum vistvæna hönnunaraðferð sem miðar að því að tengja saman mismunandi þætti í náttúrunni og byggja þannig upp sterkt lífkerfi.“ Fram undan eru líka viðburðir til fróðleiks og skemmtunar. „Við erum með ýmis námskeið og svo norrænu vistræktarhátíðina um miðjan júlí, þar verða um 80 fyrirlestrar og viðburðir. Þangað kemur margt fræðafólk og við fáum það til að fjölga hugmyndum okkar um hvernig best er að græða upp þetta land sem við erum með. Ein tilraunin felst í að nota kaffisekkina, hálffylla þá af mold, setja í þá fræ og kasta þeim á þekju þar sem vantar bindingu. Þá er hægt að raða saman plöntum sem henta vel saman,“ lýsir Mörður. Hve margir vinna í Töfrastöðum? „Við erum fjögur á hverjum degi núna og hátt í 20 manns leggja til einhverja vinnu í hverri viku. Meirihlutinn er erlendur en auk mín eru þrír Íslendingar.“ Dagskráin í dag hefst klukkan 14 og stendur fram á kvöld, síðasti dagskrárliður hefst klukkan 21, hann er samverustund við varðeld, söngur og dans sem starfsfólk Töfrastaða leiðir.
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira