Blásið til tónleika á laugardaginn Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 19. janúar 2017 09:30 Ferilstónleikar Ladda fara fram í Eldborgarsal Hörpu á laugardaginn. vísir/Ernir
Allt sem ég hef gert hefur verið skemmtilegt, það er ótrúlega skemmtilegt að gera sjónvarpsþætti, eins og t.d. Heilsubælið, Spaugstofuna, og fá að skapa skemmtilega karaktera. Laddi 6-tugur og Laddi lengir lífið standa svona helst upp úr,“ segir Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi eins og við öll þekkjum hann, spurður út í hvað stendur upp úr á löngum og farsælum ferli. Laddi ólst upp í Hafnarfirði og lærði húsgagnasmíði í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Húsgagnasmíði átti hug hans allan framan af en fljótlega fór Laddi yfir á aðra braut og fór að gera það sem hann gerir best, skemmta þjóðinni. Það er óhætt að segja að Laddi hafi komið víða við á ferli sínum og meðal annars gefið út fjöldann allan af plötum.Laddi / Sextugur/„Það er mjög erfitt að gera upp á milli laganna sinna, en Austurstræti kemur strax upp í hugann, svo eru það Búkolla, Sandalar, Mamma og ég, Með nesti og nýja skó, Gibba gibb, Freknótta fótstutta mær, svo öll hin,“ segir Laddi og bætir við að hann hafi því miður ekki töluna á því hversu mörg lög hann hafi samið í gegn um tíðina. Laddi hefur leikið í mörgum af vinsælustu kvikmyndum okkar Íslendinga og gert fjöldann allan af skemmtiþáttum, til dæmis Heilsubælið, Imbakassann og leikið í Áramótaskaupum. Á ferli hans hafa ófáir karakterar sprottið upp og orðið stór partur af grínsögu Íslendinga sem mun lifa um aldir. „Það eru nokkrir karakterar sem mér finnst skemmtilegt að leika, til dæmis Eiríkur Fjalar, Skúli rafvirki, Magnús bóndi, og Marteinn Mosdal og Elsa Lund,“ segir hann og bætir við að sennilega sé Eiríkur Fjalar líkastur sér. Spurður að því hvort fólk hafi tekið einhverjum karakter illa segir Laddi ekki svo vera. „En aftur á móti heyrði ég að Grínverjinn hefði ekki fallið í góðan jarðveg hjá Kínverjum á Íslandi, en ég fann aldrei neitt fyrir því sjálfur.“ Á laugardaginn, daginn eftir afmælisdag Ladda, verður blásið til ferilstónleika í Eldborgarsal Hörpu, þar sem stór hljómsveit stígur á svið með Ladda ásamt gestasöngvurum. „Þetta eru tónleikar sem byggðir eru á mínum tónlistarferli, og mínum laga- og textasmíðum. Æfingaferlið hefur gengið alveg ljómandi vel. En ég verð þó að játa það að ég er ansi spenntur, en ekki beint stressaður,“ útskýrir Laddi.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira