Lífið

Illdeilur Kimmel og Damon taka óvænta stefnu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hver er pabbinn?
Hver er pabbinn? Vísir
Ekkert lát virðist vera á illdeilum spjallþáttastjórnandans Jimmy Kimmel og Matt Damon. Í nýrri stiklu fyrir spjallþátt Kimmel heldur Damon því fram að hann sé faðir ófædds barns Kimmel.

Hafa þeir átt í áralöngum illdeilum sín á milli sem rekja má allt aftur til ársins 2003 þegar Kimmel notaði nafn Damon til þess að vekja athygli á

spjallþætti sínum.

Sjá einnig:Saga tíu ára illdeilna Jimmy Kimmel og Matt Damon 

Kimmel á von á barni með með eiginkonu sinni, Molly McNearney, sem er einn af aðalhandritshöfundum spjallþáttar Kimmel. Í stiklu fyrir spjallþátt kvöldsins er Kimmel og kona hans mætt í ómskoðun. Þar leynist þó óvæntur gestur sem heldur því fram að hann sé pabbinn, ekki Kimmel.

Það var að sjálfsögðu Matt Damon og reyndu þeir að leysa úr deilum sínum í spjallþættinum, með óvæntum niðurstöðum sem sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.