Kane bætti markamet Shearer Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. desember 2017 14:15 Harry Kane er búinn að skora 39 mörk árið 2017 vísir/getty Harry Kane skoraði sína áttundu þrennu á árinu þegar Tottenham valtaði yfir Southampton á Wembley í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Kane skoraði fyrsta mark leiksins strax á 22. mínútu og bætti þar með markamet Alan Shearer frá því 1995 yfir flest mörk skoruð á einu almannaksári í ensku úrvalsdeildinni. Englendingurinn gerði svo enn betur og skoraði 38. mark sitt á árinu á 39. mínútu og tvöfaldaði forystu Tottenham. Hann innsiglaði svo þrennuna á 67. mínútu. Í millitíðinni höfðu Dele Alli og Son Heung-Min skorað sitt hvort markið fyrir Tottenham og Sofiane Boufal klóraði í bakkann fyrir Southampton. Dusan Tadic átti lokaorðið í þessum sjö marka leik þegar hann skoraði fyrir gestina á 82. mínútu. Harry Kane fór á kostum í fyrri hálfleik og voru úrslitin í raun ráðin strax, en mörk Alli og Son gerðu út um hann þrátt fyrir að Southampton hafi náð sér í tvö sárabótamörk. Tottenham fer með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar, en Liverpool á leik í kvöld og getur endurheimt sæti sitt. Úrslitin breyta engu fyrir Southampton eins og er, þeir eru enn í 13. sæti, en gætu misst einhver lið upp fyrir sig eftir því sem líður á daginn.56 - Harry Kane has scored 56 goals in 52 appearances in all competitions for Tottenham and England in 2017 (49 for Tottenham, 7 for England). Phenomenal. pic.twitter.com/JgtUawSkN8 — OptaJoe (@OptaJoe) December 26, 2017 Enski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn