Missti heilsuna vegna myglu Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 30. maí 2017 17:00 Þegar ég stóð í þessu gat ég ekki ímyndað mér hvað mygla getur valdið miklum veikindum,“ segir Regína.
Mygla í húsnæði hefur haft mikil áhrif á líf Regínu Kristjánsdóttur. Hún var meira og minna veik í átta ár án þess að nokkur skýring fyndist á veikindunum. Hún þjáðist af síþreytu, var með flensueinkenni, fékk sýkingar í lungu, háls, þvagfæri og móðurlíf. Verkir í beinum, liðum og kviði hrjáðu Regínu og um tíma var hún svo veik að vikum saman var hún rúmliggjandi. „Ég fékk öll þau einkenni sem hægt er að fá af völdum myglu. Ég dofnaði vinstra megin í höfðinu, fékk blóðnasir í tíma og ótíma og sjóntruflanir. Það leið yfir mig í vinnunni og í kjölfarið var ég flutt á sjúkrahús en samt fannst ekkert að mér. Ég leitaði ótal sinnum til lækna en fékk engin svör við því hvað gæti verið að angra mig,“ rifjar Regína upp.Hélt hún væri ímyndunarveikRegína hefur alltaf lifað heilsusamlegu lífi, kennt líkamsrækt um árabil og hugað vel að mataræðinu. Veikindin komu því eins og þruma úr heiðskíru lofti. „Þegar ég stóð í þessu gat ég ekki ímyndað mér hvað mygla getur valdið miklum veikindum. Heilsan varð æ verri og um tíma var svo komið að ég hélt að þetta væri bara í höfðinu á mér. Ég kom alls staðar að lokuðum dyrum. Eftir að mygla fannst í íbúðinni minni spurði ég læknana hvort þessi óútskýrðu veikindi gætu verið af völdum myglu en fékk þau svör að ekki væri viðurkennt að myglusveppur gæti valdið veikindum svo þeir vildu ekkert segja um það.“ Á þessu tímabili hafði Regína búið í þremur mismunandi íbúðum og svo virðist sem það hafi verið mygla í þeim öllum. „Ég tel að veikindi mín hafi orðið eins alvarleg og raun ber vitni vegna þess hversu lengi ég bjó í óheilsusamlegu húsnæði, en myglutegundirnar eru miseitraðar. Við fyrrverandi maðurinn minn keyptum nýuppgerða íbúð í eldra húsi og vorum viss um að hún væri í lagi en svo reyndist ekki vera. Íbúðin var á neðri hæð en gluggi á efri hæðinni fór að leka og það barst niður til okkar, auk þess sem húsið lak lítillega og þetta varð til þess að myglan fór af stað. Ég var þegar orðin veik af völdum myglu og þetta var ekki til að bæta ástandið.“Leið en ekki reiðRegína flutti úr íbúðinni sinni og stuttu síðar skildu þau hjónin. Hún segist ekki vera reið yfir því að hafa gengið í gegnum þessi veikindi heldur aðallega döpur.„Fyrst var ég reið en ég er það ekki lengur. Ég er aðallega leið yfir að hafa misst heilsuna, sem er svo mikilvæg, misst allar mínar eigur svo ég stóð uppi slypp og snauð um fimmtugt og hjónabandið farið í súginn. Auðvitað hef ég hugsað um af hverju þetta gerðist en núna hugsa ég meira um hvernig ég get miðlað af minni reynslu. Haustið 2013, eftir mikil veikindi, ákvað ég að láta þetta ekki stjórna lífi mínu. Ég fór í 800 tíma jógakennara og -þerapistanám, fékk sal til að kenna jóga og líkamsrækt og ég held að þetta hafi orðið til þess að ég hélt sönsum.“ Eftir að heilsufarið fór að lagast tók Regína mataræðið í gegn. Hún fékk mataróþol í kjölfar veikindanna og sumar fæðutegundir getur hún ekki sett inn fyrir sínar varir. „Ég hef lesið mér mikið til um mataræði og myglu og komst að því að margar fæðutegundir innihalda myglu og slíkur matur magnar upp einkennin hjá mér. Ég er með varanlegar lungnaskemmdir vegna myglunnar og get því ekki verið úti í hvaða veðri sem er, t.d. ekki á gamlárskvöld þegar mengun er mikil því hún fer svo í lungun á mér. Ég dofna strax í höfðinu ef ég fer í inn í hús þar sem mygla er til staðar.“ Í haust ætlar Regína að fara af stað með heilsuráðgjöf fyrir fórnarlömb myglu. „Ég hef verið heilsuráðgjafi í tuttugu ár og mig langar til að miðla öðrum af minni reynslu og hjálpa fólki sem hefur veikst vegna myglu við að ná heilsu á ný.“
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira