Lífið

Drengurinn sem rakaði af sér báðar augabrúnirnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hann var ekki beint sáttur með útkomuna.
Hann var ekki beint sáttur með útkomuna.
Börn eiga það til að koma sér í allskonar vandræði. Það eru í raun ekki nein takmörk fyrir vitleysunni sem ungdómurinn tekur upp á.

Eitt slíkt dæmi er ungur Bandaríkjamaður sem rakaði af sér báðar augabrúnirnar. Móðir hans kom að honum, reiddist töluvert en ákvað síðan að teikna nýjar augabrúnir á hann.

Hann var ekkert sérstaklega hrifinn af útkomunni. Myndbandið kom inn á myndbandaveituna YouTube í maí á síðasta ári en varð vinsælt á Reddit á dögunum og hafa nú nokkur hundruð þúsund manns horft á.

Hér að neðan má sjá myndband af mjög pirruðum ungum dreng, en mamman sér spaugilegu hliðina á þessu öllum saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×