Lífið

Kim Kardashian rifjar upp ránið í París

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ljóst er að það er ekki auðvelt fyrir Kim að rifja ránið upp.
Ljóst er að það er ekki auðvelt fyrir Kim að rifja ránið upp. Vísir/Skjáskot
Kim Kardashian West rifjar upp ránið í París í nýrri stiklu fyrir þættina Keeping Up With the Kardashians.

„Þeir munu skjóta mig í bakið,“ segir Kardashian um ránið en hún var rænd á hótelherbergi í París í október síðastliðnum. Þjófarnir komust undan með þýfi að andvirði 1,2 milljörðum íslenskra króna.

„Ég kemst í gífurlegt uppnám þegar ég hugsa um þetta.“

Í stiklunni sést hún einnig fá erfitt símtal og er gefið í skyn að það snúi að áfalli eiginmanns hennar, Kanye West, sem lagður var inn á sjúkrahús í lok nóvember vegna andlegra veikinda.

Keeping Up With The Kardashians snúa aftur í mars, en tvísýnt var um framtíð þáttanna eftir ránið. Héldu margir að Kardashian myndi vilja hætta tökum alfarið, en svo er ekki og er von á seinni hluta tólftu þáttaraðar í mars.


Tengdar fréttir

Kim Kardashian rænd: Hvað gerðist í París?

Ljóst er að ræningjarnir komust í burtu með skargripi sem metnir eru á hundruð milljóna og er þeirra leitað. Margt er á huldu varðandi ránið en hér er farið yfir það sem er vitað.

Evróputúr Kanye West aflýst

Seinni leggur tónleikaferðalags Kanye West hefur verið aflýst en þetta kemur fram í frétt á vef TMZ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.