Enski boltinn

Everton krækir í eina af vonarstjörnum Englands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lookman skaust fram á sjónarsviðið á síðasta tímabili.
Lookman skaust fram á sjónarsviðið á síðasta tímabili. vísir/getty
Everton hefur fest kaup á enska unglingalandsliðsmanninum Ademola Lookman frá Charlton Athletic.

Lookman, sem er 19 ára kantmaður, skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Everton. Talið er að Lookman hafi kostað Everton 11 milljónir punda.

Lookman kom inn í aðallið Charlton um mitt síðasta tímabil. Hann sýndi góða takta en það dugði ekki til því Charlton féll niður í C-deildina. Lookman lék með Jóhanni Berg Guðmundssyni hjá Charlton.

Lookman skoraði fimm mörk í 21 deildarleik með Charlton á þessu tímabili.

Everton situr í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Leicester City í ensku bikarkeppninni á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×