Lífið

Hlustaðu á Emmu Watson syngja sem Bella í Beauty and the Beast

Stefán Árni Pálsson skrifar
Watson fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Watson fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Endurgerð Disneymyndarinnar Beauty and the Beast, eða Fríða og dýrið, mun birtast í kvikmyndahúsum í mars á þessu ári.

Um er að ræða leikna endurgerð á sögunni frægu um tilhugalíf Bellu og dýrsins og húsmuni dýrsins.

Bella er leikin af Emmu Watson og er dýrið leikið af Dan Stevens, sem er enn sem komið er er hvað þekktastur fyrir að leika í Downton Abbey á árum áður.

Meðal annarra leikara eru Kevin Kline, Ewan McGregor, Luke Thompson og Emma Thompson.

Á gamlársdag birtist þrjátíu sekúndna hljóðbrot á Facebook-síðu kvikmyndarinnar þar sem heyra mátti Emma Watsn syngja frægt lag úr kvikmyndinni. Hér að neðan má hlusta á hvernig Emma Watson kemur út sem Bella. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×