Ari slær í gegn á Facebook Stefán Þór Hjartarson skrifar 18. janúar 2017 10:00 Ari Eldjárn hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir og um helgina kom 50 þúsundasti gesturinn á sýningu Mið-Íslands. Vísir/Stefán „
Ég er búinn að fá dálítið af viðbrögðum frá fólki sem ég þekki í Finnlandi sem hefur séð fólk vera að deila þessu. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt, þetta er orðið tveggja ára gamalt og hefur greinilega farið á eitthvað flakk allt í einu. Það er líka rosa gaman að lesa kommentin. Fólk virðist fyrst og fremst vera að spá í því sem ég er segja um tungumálin þannig ég upplifi þetta ekkert eins og ég sjálfur sé farinn á eitthvað flakk. Það eru þvílíkar umræður byrjaðar þar sem fólk er mikið að velta fyrir sér af hverju ég minnist ekki á eistnesku líka því hún er svo skyld finnsku og svo eru einhverjir málfræðingar komnir þarna á flug með pælingar sem eru langt fyrir ofan minn skilning,“ segir grínistinn Ari Eldjárn, en myndband með honum að segja brandara hjá Norðurlandaráði hefur farið á töluvert flug á Facebook síðunni Very Finnish problems og er þar komin með hátt í eina og hálfa milljón áhorfa. „Ég hef svolítið verið að skemmta í Finnlandi og hef farið þangað í þeim tilgangi alla vega tíu sinnum seinustu ár. Ég hef tvisvar farið á frábæra grínhátíð sem heitir Stand Up Turku! og var núna að fá boð um að koma þangað í þriðja skiptið, að því er virðist út af þessu myndbandi. Þannig að þetta er að tryggja mér endurráðningu, í það minnsta,“ segir Ari. En hversvegna ætli akkúrat þetta myndband hafi farið á svona mikið flug? „Kannski er sjaldgæft að það sé búið til grín um Finnland á ensku, ég held að þetta sé yfirleitt Finnar að tala um Finna, þeir eru svo einangraðir eitthvað. En já ég meina, ég heiti Ari og er náfölur, þannig að ég er eiginlega hálfur Finni nú þegar og svo eru Íslendingar með svipað „errr“ og Finnar. Ég á líka góða finnska vini sem hafa hjálpað mér að semja eitthvað af þessu gríni og ber þar helst að nefna Ismo Leikola og André Wickström sem verður einmitt gestur með okkur í Mið-Íslandi í febrúar.“ Það er líka smá grín um Dani þarna í myndbandinu og eitthvað af viðbrögðunum virðist vera komið frá fólki sem hefur búið í Danmörku og talar ekki dönsku en hefur talað ensku við Dani og virðast tengja mjög mikið við það.En hvað það helsta sem er á döfinni hjá þér? „Það er Mið-Ísland um hverja helgi næstu mánuði, tónleikar með Sinfó í febrúar og svo ætla ég að koma fram á Edinborgarhátíðinni í ágúst.“Ætlarðu ekki að verða viral þar líka? „Ætli það. Það eru svona 4000 uppistandssýningar í gangi þar á sama tíma. Og að ætla að verða viral er held ég alltaf dálítil óskhyggja – svolítið eins og að ætla að semja vinsælt lag. Það er engin leið að vita hvað verður vinsælt á endanum“ Mið-Ísland hefur hafið sýningar á ný, en um síðustu helgi kom 50 þúsundasti gesturinn á sýningu þeirra og var leystur út með fullt fangið af blómum og gjöfum.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira