Náðu þér á rétta braut á nýju ári Guðný Hrönn skrifar 12. janúar 2017 11:15 Dóri Tul og Rakel Orra hafa mikla reynslu af því að aðstoða fólk við lífsstílsbreytingar. Vísir/Anton Brink
Þjálfararnir og lífsstílsnappararnir Dóri Tul og Rakel Orra vita hvað virkar þegar kemur að lífsstílsbreytingum. Lífið fékk þau til að gefa lesendum góð ráð í tilefni þess að á nýju ári fyllast líkamsræktarstöðvar landsins af fólki með metnaðarfull markmið í farteskinu.Settu þér markmið Sjáðu fyrir þér eitt stórt markmið við sjóndeildarhringinn sem þig hefur alltaf langað til þess að ná, skrifaðu það niður og hafðu það sjáanlegt. En á langri leið er auðvelt að fara út af sporinu. Búðu til tímalínu að stóra markmiðinu og á þessa tímalínu setur þú mörg lítil markmið. Hvert markmið sem næst er sigur sem fleytir þér áfram, veitir þér sjálfstraust og orku í að nálgast næsta markmið. Með þessu færðu marga sigra á leiðinni að stóra markmiðinu þínu og leiðin verður bæði auðveldari og skemmtilegri fyrir vikið.Hreinsaðu til í eldhúsinu Til hvers að eiga sælgæti og vörur fullar af transfitusýrum ef þú ert með það að leiðarljósi að borða þær ekki? Þegar hungrið kallar þá grípum við það sem hendi er næst. En það er jafn auðvelt að teygja sig í ávaxtakörfuna eins og í nammiskápinn, en ef skápurinn er tómur, þá leitum við í hollu trefjaríku ávextina sem liggja í körfunni. Jákvætt hugarfar skiptir miklu máli þegar fólk gerir lífsstílsbreytingu.Verslaðu skynsamlega Ekki fara í búðina með tóman maga og lágan blóðsykur, það endar með því að þú liggur afvelta á nammiganginum í Bónus því þig mun langa í allan þann sykur sem finnst í búðinni. Gerðu góðan lista með matarplönum heimilisins fyrir alla vikuna svo þú þurfir einungis að gera þér eina ferð í viku í búðina að kaupa inn. Þetta sparar þér bæði tíma og peninga, ásamt því að þú „neyðist“ ekki til þess að panta þér skyndibita vegna þess að það er ekkert til að borða.Temdu þér jákvætt hugarfarÞað er magnað hvað ein jákvæð hugsun getur komið þér langt. Á hverjum morgni skaltu prófa að finna að lágmarki fimm jákvæða punkta um sjálfan þig, í staðinn fyrir að segja: „Ég get þetta ekki,“ segðu þá: „Hvað þarf ég að gera til þess að geta þetta?“Byrjaðu að hreyfa þigReyndu að finna þér eitthvað sem þú hefur gaman af og/eða hefur áhuga á að gera. Það endist enginn í hreyfingu sem honum finnst leiðinleg. Byrjaðu rólega og skynsamlega því flestir fara of geyst af stað og gefast upp undan álaginu sem því fylgir. Ef þú finnur fyrir óöryggi, leitaðu til þjálfara eða ráðgjafa og fáðu aðstoð. Það er margt fólk sem vinnur við það að hvetja þig áfram og leiðbeina þér í átt að markmiðum þínum. Dóri og Rakel halda úti vefnum thol.is og sömuleiðis eru þau með Snapchat-ið thol.is, þar veita þau fylgjendum sínum hvatningu og góð ráð.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira