Íslenski boltinn

Pepsi-deildin byrjar í apríl í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar byrja á undan strákunum í ár.
Stelpurnar byrja á undan strákunum í ár. Vísir/Eyþór
Mótanefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur birt á vef sínum frumdrög að leikjaniðurröðun í Pepsi-deild karla og kvenna og samkvæmt þeim verður byrjað snemma á Íslandmótinu í ár.

Íslandsmótið hefur verið að byrja fyrr og fyrr undanfarin tímabil og í sumar verður engin breyting á þeirri þróun þegar Pepsi-deildirnar færa sig fram í aprílmánuð.

Deildirnar hafa aldrei áður byrja í aprílmánuði og þá vekur einnig athygli að stelpurnar byrja á undan strákunum en það hefur ekki gerst í átta ár eða síðan 2009

Fyrsta umferð í Pepsi-deild kvenna er sett á fimmtudaginn 27. apríl og byrjar því á undan Pepsi-deild karla. Íslenska kvennalandsliðið er á leiðinni á Evrópumótið í Hollandi í sumar og því þarf að gera 38 daga hlé á deildinni frá 2. júlí til 9. ágúst.

Pepsi-deild kvenna hefst því tveimur vikum fyrr í sumar en í fyrra þegar fyrstu leikirnir voru 11. maí.

Karladeildin byrjar einnig í fyrsta sinn í aprílmánuði en helmingur leikja í fyrstu umferðinni í Pepsi-deild karla fara fram 30. apríl. Þetta er fimmta árið í röð sem fyrsti leikur færist framar.

Lið ÍBV, Fjölnis, Vals, Víkings Ó., ÍA og FH hefja þannig öll tímabilið í apríl en fyrsti leikurinn hjá liðum Breiðabliks, KA, KR - Víkings R., Grindavíkur og Stjörnunnar verður aftur á móti í maí.

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu umferðina og tímasetningar leikjanna eins og þeir líta út í dag.  Það má líka sjá stöðuna á öllum leikjunum hér: Pepsi-deild karla og Pepsi-deild kvenna

Fyrsta umferð Pepsi-deildar kvenna 2017:

fim. 27. apr. 17     18:00     Þór/KA - Valur     Þórsvöllur                     

fim. 27. apr. 17     18:00     KR - ÍBV     Alvogenvöllurinn                     

fim. 27. apr. 17     19:15     Haukar - Stjarnan     Ásvellir                     

fim. 27. apr. 17     19:15     Fylkir - Grindavík     Floridana völlurinn                     

fim. 27. apr. 17     19:15     Breiðablik - FH     Kópavogsvöllur

Fyrsta umferð Pepsi-deildar karla 2017:

sun. 30. apr. 17     17:00     ÍBV - Fjölnir     Hásteinsvöllur                     

sun. 30. apr. 17     19:15     Valur - Víkingur Ó.     Valsvöllur                     

sun. 30. apr. 17     19:15     ÍA - FH     Norðurálsvöllurinn                     

mán. 01. maí. 17     17:00     Breiðablik - KA     Kópavogsvöllur                     

mán. 01. maí. 17     19:15     KR - Víkingur R.     Alvogenvöllurinn                     

mán. 01. maí. 17     19:15     Grindavík - Stjarnan     Grindavíkurvöllur



Fyrsti leikur í Pepsi-deild kvenna síðustu tímabil:

2017: 27. apríl

2016: 11. maí

2015: 14. maí

2014: 13. maí

2013: 7. maí

2012: 13. maí

2011: 14. maí

2010: 13. maí

2009: 9. maí

2008: 12. maí



Fyrsti leikur í Pepsi-deild karla síðustu tímabil:

2017: 30. apríl

2016: 1. maí

2015: 3. maí

2014: 4. maí

2013: 5. maí

2012: 6. maí

2011: 2. maí

2010: 10. maí

2009: 10. maí

2008: 10. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×