Glamour

Kate Moss og David Beckham sátu á fremsta bekk hjá Louis Vuitton

Ritstjórn skrifar
Tvær stærstu stjörnur Bretlands sátu saman.
Tvær stærstu stjörnur Bretlands sátu saman. Mynd/Getty
Bresku stjórstjörnurnar Kate Moss og David Beckham sátu saman á tískusýningu Louis Vuitton í París í gær. Það fór greinilega vel um þau á fremsta bekk þar sem þau sáust hlægja og skemmta sér vel fyrir sýninguna. 

Louis Vuitton er verðmætasta tískuhús heims og því afar eftirsóknarvert að fá boðskort á sýningarnar þeirra, þá sérstaklega að fá sæti á fremsta bekk. Sýningin sjálf hefur vakið mikla athygli á samfélags miðlum þar sem Louis Vuitton afhjúpaði loksins samstarf sitt við Supreme sem mun líklega seljast upp á nokkrum sekúndum þegar það lendir í búðum. 






×