Lífið

Lengi þráð að vera málari

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Helena og Kolbeinn við Hallgrímskirkju sem þau sjá um utanhússviðgerðir á um þessar mundir.
Helena og Kolbeinn við Hallgrímskirkju sem þau sjá um utanhússviðgerðir á um þessar mundir. Vísir/GVA
Alveg frá því ég var unglingur hefur blundað í mér áhugi á að verða málari en þá var það svo mikil karlastétt að ég hugsaði það ekkert lengra“ segir Anný Helena Hermansen viðskiptafræðingur, sem jafnan gengur undir seinna nafninu, Helena.

Hún útskrifast sem sveinn í málaraiðn í dag og er meðal nýsveina og meistara þeirra sem hljóta viðurkenningu fyrir afburðaárangur á sveinsprófi á verðlaunahátíð í Ráðhúsinu. Sú hátíð er meðal atriða sem Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík efnir til vegna 150 ára afmælis síns.

Helena er gift Kolbeini Hreinssyni múrarameistara. „Við Kolbeinn höfum rekið saman fyrirtækið M1 í kringum múrverk og fasteignaviðhald í mörg ár en þegar kreppan skall á versnaði verkefnastaðan hjá okkur á veturna og í staðinn fyrir að fara á atvinnuleysisbætur ákváðum við að fara bæði í skóla og læra málaraiðn,“ segir hún.

„Það er alltaf einhver málningarvinna eftir múrverksframkvæmdir og ég var búin að grípa í hana og líka múrverk af og til.“

Helena er viðskiptafræðingur að mennt og vinnur við bókhald, bæði fyrir eigið fyrirtæki og annarra. „Ég var byrjuð í meistaranámi í endurskoðun og prófaði að vinna á endurskoðunarskrifstofu en fann að mér líkaði það ekki svo ég ákvað að gera eitthvað sem mig langaði meira,“ lýsir hún.

Það fór svo að Kolbeinn varð meistari Helenu í málaraiðninni. Hann var fyrir löngu orðinn múrarameistari og þurfti því bara að taka nokkrar námsgreinar sem tilheyra málningarfaginu í Meistaraskólanum.

Kolbeinn stjórnar vinnuflokki og verkefnin undanfarin ár hafa mest snúist um endursteiningu húsa. Stærsta verkefnið núna er viðgerð á Hallgrímskirkju og annað stórt viðhaldsverkefni er innanhússviðgerð í Klettaskóla. Helena kveðst láta strákana um allt múrbrot en segir hugsanlegt að hún verði með þeim í að setja kápu á kirkjuna þegar hún sé búin með mestu skorpuna í bókhaldinu.

Þau hjón eiga þrjú börn sem taka til hendinni í fyrirtæki foreldranna, að sögn Helenu. „Annar sonurinn er að læra múrverk og er á samningi og dóttirin vinnur í málningunni með mér á sumrin og er í skóla yfir vetrartímann.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. febrúar 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.