Lífið

Beyoncé birtir fleiri bumbumyndir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Beyoncé virðist vera að vinna með blómaþema í myndatökunni.
Beyoncé virðist vera að vinna með blómaþema í myndatökunni. Vísir/Skjáskot
Bandaríska poppdrottningin Beyoncé tilkynnti í gær á Instagram-síðu að hún ætti von á tvíburum ásamt eiginmanni sínum, rapparanum Jay-Z. Fréttirnar fóru eins og eldur í sinu um netheima enda eru hjónin einhverjar stærstu stjörnur heims.

Myndin sem Beyoncé deildi varð til að mynda á nokkrum klukkutímum mest „lækaða“ myndin í sögu Instagram til þessa en þegar þetta er skrifað hefur myndin fengið yfir 7,5 milljónir „læka.“

Hjónin eiga fyrir dótturina Blue Ivy Carter sem er fimm ára.

Beyoncé hefur nú sett fleiri myndir af bumbunni inn á vefsíðu sína og eru þær hver annarri glæsilegri. 

 

Beyoncé ásamt Blue Ivy, sem eignast bráðum tvö lítil systkini.Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.