Nokkuð góð byrjun í tónleikahaldi Stefán Þór Hjartarson skrifar 18. febrúar 2017 09:15 Sigurdís heldur sína fyrstu tónleika í Eldborgarsal Hörpunnar og forsetinn mætir, ekki slæmt það. Vísir/Eyþór „
Slysavarnafélagið Landsbjörg er búið að vera svo öflugt í vetur, það eru öll þessi stóru mál sem maður hefur tekið svo persónulega – það er náttúrulega hvarf Birnu og síðan strax á eftir var snjóflóðið í Esjunni. Það kom mér í raun á skrið,“ segir Sigurdís Sóley Lýðsdóttir, 27 ára stuðningsfulltrúi, sem ákvað upp á sitt eindæmi að halda tónleika til styrktar Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Og þvílík byrjun hjá Sigurdísi í tónleikahaldi – tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpunnar og fram koma Jón Jónsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi, María Ólafsdóttir, Friðrik Dór, Jóhanna Guðrún, Haukur Heiðar og Ragnar Bjarnason. Auk þess mun forseti Íslands flytja stutta tölu í upphafi tónleikanna. Kynnar verða Sigurdís og Eva Ruza Miljevic, en Eva mun hita upp fyrir tónleikana á Snapchat-reikningi sínum, evaruza.Hvernig fórstu að því að fá listamennina og forsetann sjálfan til að mæta? „Það var algjört leyndarmál hjá mér einni, ég byrjaði bara að senda skilaboð á Facebook á tónlistarfólk til að skoða viðbrögðin og sendi líka skilaboð á Guðna forseta. Ég fékk bara svo jákvæð viðbrögð frá öllum. Guðni vildi endilega fá að fylgjast með framvindu mála og hvernig þetta gengi, honum fannst þetta frábært framtak, sem peppaði mig alveg enn þá meira. Síðan fékk ég ráðleggingar frá Ingu á NASA og ég fór eftir ráðum hennar hvernig ég gæti staðfest listamenn og nálgast þá betur. Svo hafði ég samband við Hörpu og þau voru jákvæð strax frá byrjun og vildu endilega gera eitthvað til þess að hjálpa þannig að þau gáfu eftir leigu af Eldborgarsalnum og tækjabúnaði. Allir sem koma að þessu, bæði tónlistarfólk og ég erum að gefa vinnu okkar.“ Á síðu viðburðarins á Facebook mun ljósmyndarinn Sigurður Ólafur Sigurðsson birta ljósmyndir frá starfi Landsbjargar ásamt skýringum við þær, en hann er sjálfboðaliði hjá Landsbjörg og tekur hreint magnaðar myndir af vinnu björgunarsveitarinnar. „Mér finnst persónulega myndirnar hjálpa fólki við að fá innsýn inn í störf Landsbjargar sem ég sé betur og skýrar núna eftir þetta starf mitt,“ segir Sigurdís. Aðspurð hvort hún leggi mögulega tónleikahald fyrir sig eftir þetta ævintýri svarar hún því að það sé aldrei að vita, „en ég er alveg búin að sjá að þetta er ótrúleg vinna,“ segir Sigurdís og hlær. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpunnar 1. mars. Miðaverð er 6.500 krónur og má nálgast miða á harpa.is. Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við miðasölu Hörpunnar til að fá nánari upplýsingar um sérstaka styrktarpakka sem þeim standa til boða.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Sjá meira