Ást Kött Grá Pjé á handriðum Stefán Þór Hjartarson skrifar 16. febrúar 2017 09:30 Kött Grá Pjé hefur mikið dálæti á köttum, naglalakki og handriðum. Og vafalaust fleiri hlutum líka. Vísir/Vilhelm
Rapparinn og skáldið Kött Grá Pjé, eða Atli Sigþórsson eins og mamma hans kallar hann alltaf, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlunum upp á síðkastið en hann hefur verið nokkuð iðinn við að setja inn myndir af ýmiss konar handriðum. Blaðamaður ákvað að slá á þráðinn til Kötts og spyrja hann einfaldlega: Hvers vegna handrið? „Ég er mjög lofthræddur og stend mig ítrekað að því að velta handriðum sem slíkum fyrir mér þegar ég er í tilteknum aðstæðum, þar sem mér finnst þeirra sérstaklega þörf. Fyrirlít handrið sem gegna hlutverki sínu illa, eða hlutverkum; því annars vegar að auka öryggi mitt og hins vegar að láta mig finna til öryggiskenndar. Hef þannig lært það hvað ég kann að meta við handrið og hvað ekki og smám saman urðu tilfinningarnar í garð handriða og handriðaþeoríu mjög sterkar. Notagildi og fagurfræði hafa mikið til runnið saman hjá mér, oftar en ekki finnst mér fúnksjónal handrið jafnframt falleg þó það sé ekki algilt. Svo er náttúrulega ósköp blátt áfram metafóra í þessu öllu saman, sem rótlaus maður tengir auðveldlega við,“ segir Kött um málið. Þá vitum við það. Kött Grá Pjé gaf nýlega út bókina Perurnar í íbúðinni við góðar viðtökur, hann stefnir á að gefa út plötu fljótlega og svo mun hann koma fram á Sónar-hátíðinni á laugardaginn.
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira