Frá L.A. í Hörpuna Stefán Þór Hjartarson skrifar 25. febrúar 2017 09:00 Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri Drexler ætlar sér gríðarlega stóra hluti. Vísir/Anton Brink „
Drexler er sem sagt það sem kallast á fræðimáli tónlistardrifinn fjölnotendaleikur. Í grunninn þá búa leikmenn sér til sínar eigin leikjapersónur eins og gerist í leikjum eins og World of Warcraft, en í staðinn fyrir að þróa upp bardagatækni eða galdra þá þróar leikmaðurinn hæfileika á sviði tónlistar í fjölnotendaheimi. Þetta snýst um að reyna að gera persónuna vinsæla innan þessa heims. Þetta er hlutverkaleikur en við erum með hlutverk eins þekkjast í tónlistarheiminum: umboðsmenn, tónlistarstjörnur, aðdáendur. Þetta er ekki endilega leikur fyrir hlutverkaleikjaspilara – við erum að fara aðeins meira inn í samfélagsmiðlahegðun og stór hluti leiksins fer fram á snjalltækjum. Spilarar búa til prófæl utan um karakterinn, safna aðdáendum og gefa út lög og svona,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason, framkvæmdastjóri Drexler, sem smíðaði þennan frumlega leik. Hann ætlar sér enga smá hluti með leikinn, en til hans sást í L.A. á dögunum þar sem hann mætti meðal annars á Grammy-hátíðina.Hvað voruð þið að gera í L.A.? „Við erum ekki í verkefni sem mun umbylta tölvuleikjum og við erum heldur ekki í verkefni sem mun umbylta tónlist – við erum í verkefni sem mun umbylta hvoru tveggja og öllum afþreyingariðnaðinum eins og hann leggur sig. Þannig að eðlilega erum við kannski viðloðandi fyrirtæki, viðburði og staði sem eru framarlega í afþreyingariðnaði og þess vegna vorum við tengdir Grammy-hátíðinni. Málið er náttúrulega það að ef stefnan sem við erum með, og þetta fer eins og við erum að vona, þá erum við að horfa á fyrirbæri sem er óþekkt stærð í allavega íslenskum afþreyingariðnaði. Við erum ekkert endilega að tjá okkur um einstök atvik – við erum náttúrulega búin að vera um allan heim. Við erum þarna að vinna.“Þú talaðir á ráðstefnunni Krossmiðlun í Hörpunni og erindi þitt vakti athygli – um hvað fjallaði það? „Ég opnaði ráðstefnuna – þarna koma fram fyrirtæki sem eru framarlega í sýndarveruleika. Ég er dálítill frumkvöðlaperri, ef ég má orða það þannig, ég hef gaman af því að skoða tækninýjungar. Þegar maður horfir á sýndarveruleika þá er þetta svona bóla sem hefur verið að koma fram frá átján hundruð og eitthvað og hefur alltaf klikkað, alltaf. Fyrst voru þetta ljósmyndavélarnar, síðan var þetta dótið sem var notað til að þjálfa flugmennina og geimfarana sem varð að Flight simulator og síðan á tíunda áratugnum fáum við alla þessa sýndarveruleikasprengju. Núna fáum við þetta aftur og það er alltaf sagt: tæknin er ekki nógu góð, markaðurinn er ekki tilbúinn en þetta verður ógeðslega stórt eftir fimm ár. Það sem ég er að leggja fram er þetta mál mannsins að flýja veruleikann. Við erum alltaf að reyna að flýja inn í fantasíuna og þess vegna hefur fólk haft áhuga á sýndarleika. Ég hélt því fram að sýndarveruleiki væri mjög spennandi fyrirbæri en það væri mikilvægt að gera þetta rétt og falla ekki alltaf í sömu gryfjuna. Í stuttu máli snerist þetta um hvaða lærdóm má draga af tæknisögunni. Ég var yngstur og vildi sýna góða siði og sýna gott andlit og opna með jákvæðni – þetta var fílósófísk nálgun.“
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Sjá meira