Hver er rappdrottning New York borgar? Stefán Þór Hjartarson skrifar 7. mars 2017 11:00 Nicki Minaj hefur verið gríðarlega vinsæl síðustu árin.
Stöllurnar Nicki Minaj og Remy Ma heyja nú blóðuga styrjöld um hvor þeirra sé rappdrottning New York borgar. Eða raunar virðist stríðið aðallega vera háð frá hlið Remy Ma en hún hefur gefið út tvö lög þar sem hún baunar á Nicki – en Nicki er þögul sem gröfin og lætur raunar eins og ekkert hafi gerst. Fyrra lagið, Shether, kom út fyrir um viku. Lagið er sjö mínútur að lengd og í því fer Remy um víðan völl í gagnrýni sinni á hina vinsælu Nicki Minaj. Nafn lagsins vísar til hins goðsagnakennda disslags, Ether, sem Nas gerði um Jay-Z hér um árið. Remy segir Nicki meðal annars hafa stolið af sér línum, gagnrýnir afturenda Nicki og sakar hana um framhjáhöld og kallar hana grúppíu. Stuttu síðar gaf hún út annað lag, Another One, en það vakti ekki jafn mikil viðbrögð hjá almenningi. Eins og áður sagði hefur Nicki ekki svarað.Remy Ma hefur verið að reyna að fóta sig í bransanum eftir að hún losnaði úr steininum.Hver er Remy Ma? Mörgum er nafnið Remy Ma ekki sérstaklega kunnuglegt. Remy er hluti af Terror Squad hópnum en í honum er til að mynda Fat Joe, DJ Khaled og Big Pun heitinn. Hún gaf út sólóplötu árið 2006 og virtist stefna í að hún yrði stjarna í rappheiminum en árið eftir lenti hún í því „óhappi“ að skjóta einn meðlim fylgdarliðsins síns og fór því beina leið í steininn. Hún slapp ekki út fyrr en árið 2014. Síðan þá hefur hún verið að vinna að því að koma sér aftur á blað, var til dæmis í laginu All the Way Up með Fat Joe og fleirum sem varð mjög vinsælt í fyrra og stefnir nú á að gefa út plötuna Plata o Plomo með Fat Joe. Síðan kom hún sér heldur betur á blað með því að skjóta á Nicki Minaj.Getum við ekki öll bara verið vinir? Hver er ástæða þess að Remy Ma ræðst skyndilega á stöllu sína? Hvers vegna getum við ekki bara öll verið vinir? Remy sjálf segir að rætur illindanna liggi djúpt og hafi í raun tekið að spretta í kringum 2007 þegar Nicki Minaj var nánast óþekkt. Remy segist vera að svara Nicki, enda hafi Nicki komið illa fram við hana „bak við tjöldin“ og að Nicki sé ekki góð manneskja. Einnig gerði Nicki lagið Dirty Money árið 2007 sem byrjar á orðunum „segðu þessari tík með kórónuna að koma sér?…“ og á þá við að hún eigi kórónuna skilið – Remy Ma hafði gefið út mixteip á svipuðum tíma þar sem hún er með kórónu á umslaginu. Nicki hefur þó aldrei viðurkennt að hafa verið að tala um Remy. Remy sagði í viðtali í þætti Wendy Williams að Nicki hefði reynt að koma í veg fyrir að ferill hennar kæmist á skrið, en Remy mætti klædd eins og hún væri í jarðarför í þættinum og vildi lítið tjá sig um Nicki vegna þess að mamma hennar hefði kennt henni að „tala ekki illa um þá dauðu“. „Allir“ bíða nú spenntir eftir svari frá Nicki Minaj. Þó gæti það orðið löng bið og kannski hefur hún ákveðið að leiða þetta hjá sér.Viðbrögð fræga fólksins50 Cent – Rapparinn 50 Cent veigrar sér aldrei við að lenda í illdeilum og hann virðist hafa gaman af illdeilum Nicki og Remy Ma. „Hiphop er svo skemmtilegt. Nicki verður að gera eitthvað. Vandamálið er að Remy Ma er hörð í horn að taka.“Lil Kim – „Þetta er grjóthart lag, Remy þarf enga hjálp,“ segir rapparinn Lil Kim aðspurð hvort hún ætli að taka þátt í deilunum með Remy en Lil Kim og Nicki hafa eldað grátt silfur.Vivica A. Fox – Leikkonan segir Remy Ma vera frábæra í viðtali við The Shade Room en henni líst hins vegar ekkert á að þær stöllur standi í rifrildi og finnst að þær ættu frekar að vinna saman, enda sé það „það sem konur gera“.Samanburður Sóló lög á Hot 100 listanum Remy Ma: 1 Nicki Minaj: 25Hæsta sæti plötu á Billboard listanum RM: #33 NM: #1 (Tvisvar)Flest áhorf á YouTube RM: 4.5 milljónir NM: 660 milljónirGrammy tilnefningar RM: Tvisvar fyrir besta rapplagið NM: Tíu sinnum fyrir plötur, lög og fleira.BET verðlaun fyrir besta kvenrapparann RM: Ein verðlaun árið 2005 NM: Sjö verðlaun frá árinu 2010 til 2016Followers á Instagram og Twitter RM: 3.7 milljónir á Instagram og 240 þúsund á Twitter NM: 75 milljónir á Instagram og 20 milljón á Twitter
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Maggie Smith er látin Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira