Lífið

Halla margbrotin eftir misheppnaða pottaferð

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Fyrirhuguð fjölskylduferð í pottinn í fallega veðrinu í gær endaði í sjúkrabíl og næturdvöl á LSH, þar sem ég bíð nú eftir aðgerð við fjölda beinbrota á ökkla/legg.“

Svona hefst frásögn Höllu Tómasdóttur, fyrirlesara, ráðgjafa og frambjóðandi í síðustu forsetakosningum á Facebook. Hún segist vera í góðum höndum á spítalanum.

„Er í góðum höndum þess frábæra starfsfólks sem hér vinnur þrekvirki við erfiðar aðstæður og sýnir manni þrátt fyrir það ekkert nema hlýju og alúð. Er þeim einlæglega þakklát og treysti þeim til að kippa afbökuðum fæti aftur í form.“

Halla bæti við að sjúkraflutningsmennirnir hafi einnig verið einstakir.

„Vona ég að þeir fyrirgefi konunni á sundbolnum allt bullið sem uppúr henni valt à sínum fyrsta rótsterka verkjalyfjaskammti. Sundbolnum hefur verið skipt út fyrir þennan glæsilega búning og er mér sagt að búa mig undir gifs frá tám uppí nára, án fótstigs, í amk 6-8 vikur.“

Heimkoman var hörð lending.

„Þessu verður mætt af æðruleysi og þakklæti, hefði svo sannarlega getað farið verr. Þigg með þökkum allar ykkar góðu óskir, virka örugglega betur en allt heimsins morfín! Farið varlega í hálkunni elskurnar.“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×