Lífið

Hlynur mættur aftur sem Mr - Ice: Splunkunýr slagari um deitmarkaðinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikill slagari hér á ferðinni.
Mikill slagari hér á ferðinni.
Listamaðurinn Mr - Ice gaf á dögunum út splunkunýtt lag sem ber nafnið Ég er hér. Mr – Ice heitir í raun og veru Hlynur Jónsson og er 35 ára Akureyringur.

Áður var listamannanafn hans Icefit en nýlega stytti hann nafnið í Mr – Ice.

„Ég hef verið að leika mer að semja aðeins lög undafarið sem byrjaði á grínlagi en hef aðeins verið að færa mig upp og þróa lagasmiðina vonandi til betri vegar,“ segir Hlynur í samtali við Lífið.

Hann segir að um sé að ræða mjög kynþokkafullt lag um samskipti kynjanna og deitmarkaðinn á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×