Glamour

Engin aldurstakmörk í nýjustu seríu Americas Next Top Model

Ritstjórn skrifar
Tyra vill stærra aldursbil í ANTM.
Tyra vill stærra aldursbil í ANTM. Mynd/Getty
Í nýjustu þáttaröð Americas Next Top Model verður ekkert aldurstakmars samkvæmt yfirlýsingu frá Tyru Banks. Fyrirsætan hefur ákveðið að taka aftur við þáttastjórn ANTM eftir að hafa tekið sér árs pásu. Rita Ora stjórnaði þáttunum í eina séríu. 

Hingað til hefur verið 27 ára aldurstakmark en nú mega þáttakendur á öllum aldri láta ljós sitt skína. Skráning fyrir þáttöku er nú í gangi og Tyra hvetur alla sem hafa áhuga að taka þátt. Í gegnum tíðina hefur verið mikil fjölbreytni á meðal keppenda í þáttunum en nú má búast við því að það verði enn meira. 










×