Stálu frystum fiskafurðum og fuglakjöti fyrir tæpar 700 þúsund krónur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. apríl 2017 12:36 Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri. Vísir/pjetur
Héraðsdómur Norðurlands Eystra hefur dæmt tvo menn til fangelsisvistar fyrir að hafa stolið frosnum fiskafurðum og fuglakjöti í nóvember í fyrra en verðmæti þýfisins nam tæpum 700 þúsund krónum. Annar maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og hinn maðurinn í tveggja mánaða fangelsi en þeir játuðu sök fyrir dómi. Að því er fram kemur í ákæru brutust mennirnir í sameiningu inn í frystigám fyrir utan fiskverkunina Hnýfil á Akureyri. Stálu þeir þaðan frosnum fiskafurðum, meðal annars fiskibollum, fiski í orlydeigi, humri, smálúðuflökum og söltuðum gellum. Þá stálu þeir jafnframt lunda og svartfuglsbringum. Við ákvörðun refsingar yfir mönnunum var litið til þess að fyrirtækið varð ekki fyrir verulegu tjóni vegna innbrotsins þar sem þýfið náðist að mestu. Þá var jafnframt litið til þess að mennirnir brutust inn í sameiningu. Ekki var unnt að skilorðsbinda dómana þar sem mennirnir eiga báðir töluverðan sakaferil að baki. Þá rauf annar mannanna skilorð með innbrotinu.
Mest lesið Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Loksins mega hommar gefa blóð Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Fleiri fréttir Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Þrír í haldi í fíkniefnamáli Sjá meira