Lítið svigrúm samkvæmt Salek til að hækka laun lækna Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 15. apríl 2017 19:30
Lítið svigrúm er til að hækka laun lækna samkvæmt Salek samkomulaginu en kjarasamningur þeirra rennur út eftir rúmar tvær vikur. Formaður Læknafélags Íslands, Þorbjörn Jónsson, vill ekki gefa upp hvort kröfugerð félagsins rúmist innan samkomulagsins. Þá dregur hann í efa að verkfallsvopnið yrði virt af hálfu ríkisins, í ljósi lagasetningar á kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og félagsmanna BHM. Kjarasamningur lækna rennur út 30. apríl og eru samninganefndir Læknafélags Íslands og ríkisins búnar að hittast á þremur fundum. Þorbjörn segir góðan anda í viðræðunum. „Þannig að ég held að það sé engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn,” segir Þorbjörn.32 prósent til ársloka 2018Salek samkomulagið kveður á um samræmda launastefnu til ársloka 2018. Í samkomulaginu kemur fram að laun megi ekki hækka um meira en sem nemur 32 prósentum frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Læknar fengu að meðaltali um 25 prósenta launahækkun í kjarasamningum sem undirritaðir voru í byrjun árs 2015, en þeir höfðu árin á undan dregist aftur úr viðmiðunarstéttum. Þá hækkuðu laun þeirra um tvö og hálft prósent 2016 og um eitt og hálft prósent um síðustu áramót. Alls hafa laun þeirra því að meðaltali hækkað um 29 prósent á þessu tímabili.Ekki rætt við lækna við gerð SalekBæði ríki og sveitarfélög hafa skuldbundið sig til að halda sig innan ramma Salek samkomulagsins og því má spyrja – er ekki lítið svigrúm samkvæmt Salek samkomulaginu til að hækka laun lækna? „Ég myndi nú vilja svara þessu þannig að það var ekkert rætt við okkur eða fjölmörg önnur launþegasamtök við gerð Salek samkomulagsins,” segir Þorbjörn.En rúmast ykkar kröfugerð innan Salek samkomulagsins?„Ég eiginlega get ekki svarað því,” segir Þorbjörn. Ekki lofandi að verkfallsvopnið yrði virtSíðustu kjaradeilu lækna lauk með samningum eftir rúmlega tveggja mánaða verkfall en Þorbjörn segir erfitt að segja til um hvort nú hægt verði að afstýra verkfalli. „Það má benda á það að það voru auðvitað sett lög á síðustu samningagerð hjá hjúkrunarfræðingum og BHM. Og það auðvitað er ekki lofandi fyrir það að verkfallsvopnið yrði virt,” segir Þorbjörn. Samninganefndir lækna og ríkisins munu hittast fljótlega eftir páska, en á morgun eru tvær vikur þar til kjarasamningurinn rennur út. Reiknar þú með að þið náið að klára viðræðurnar fyrir þann tíma? „Ekki finnst mér það nú líklegt, ef ég á að vera alveg heiðarlegur,” segir Þorbjörn.
Mest lesið Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Loksins mega hommar gefa blóð Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt Innlent Fleiri fréttir Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Þrír í haldi í fíkniefnamáli Sjá meira