Tímabært að krabbameinsáætlun sé sett á fót Nadine Guðrún Yaghi skrifar 13. apríl 2017 20:30 Valgerður Sigurðardóttir, formaður Krabbameinsfélagsins.
Krabbameinsáætlun verður kynnt eftir páska en vinnu ráðherranefndar er löngu lokið og hefur stjórnsýslan verið gagnrýnd fyrir seinagang. Formaður Krabbameinsfélagsins segir mikilvægt að á Íslandi sé til heildstæð krabbameinsáætlun og fagnar því að ráðherra ætli að bregðast við. Fréttablaðið greindi frá því í dag að krabbameinsáætlun fyrir Ísland verði loks kynnt eftir páska. Vinnu ráðherranefndar um málið sé þó löngu lokið og er stjórnsýslan gagnrýnd fyrir seinagang. Krabbameinsfélög hafi spurt heilbrigðisyfirvöld um stöðu málsins en ekki verið svarað. Valgerður Sigurðardóttir, formaður Krabbameinsfélagsins, segir löngu tímabært að krabbameinsáætlun verði sett á fót. „Við fögnum því náttúrulega að þessi skýrsla hafi verið tekin upp úr skúffunni og að ráðherra hafi ákveðið að halda áfram. Það var mjög mikil vinna lögð í þessa skýrslu,“ segir Valgerður. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem hefur ekki enn sett sér heildstæða krabbameinsáætlun. „Ég held að það hafi nú verið bara seint árið 1998 sem að fyrstu áætlanirnar komu á Norðurlöndunum. Þannig að við erum langt á eftir“ Í dag greinast árlega yfir 1500 manns með krabbamein á Íslandi og segir Valgerður gríðarlega mikilvægt að Ísland sé með heildstæða krabbameinsáætlun. „Það er einn af hverjum þremur sem einhverntíman á ævinni greinist með þennan sjúkdóm. Það er mjög mikilvægt fyrir samfélagið að þessi meðferð og greining gangi vel fyrir sig svo fólk komist aftur út í samfélagið,“ segir Valgerður.
Mest lesið Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Loksins mega hommar gefa blóð Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Fleiri fréttir Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Þrír í haldi í fíkniefnamáli Sjá meira